Þá er ég orðinn árs gamall. Ég hélt flotta veislu á afmælisdaginn með mikka mús diskum og sérvéttum og flottri kanínuköku sem mamma og pabbi gerðu handa mér. Ég fékk marga gesti og fullt af litríkum pökkum. Amma og afi í Kópavogi gáfu mér stóran flottan bíl og amma og afi í Hollandi gáfu mér pollagalla og stígvel til að nota á leikskólanum. Svo fékk ég fullt af dóti, bíla, bolta, púsl og bækur og allskonar dót. Ég fékk líka einhver föt svo ég geti haldið áfram að vera töffari.
Ég fór í einsárs skoðun um daginn og var þá orðinn 79,5 sm og 11 kg. Ég er farinn að tala meira og er farinn að segja reglulega off (voffi) og datt. Svo segi ég alltaf sko þegar ég geri eitthvað. Nú er ég byrjaður á leikskóla líka og það gengur rosalega vel. Mér langar bara að leika áfram þegar ég er sóttur.
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
![]() |
Page:[1] [2] |
|||
Photo album created with Web Album Generator