Jólin voru mikil upplifun fyrir Þorra. Hann var mjög spenntur yfir öllum jólaljósunum og jólaskrautinu. Hann bendir eins og óður maður á allt sem honum líst á og segir vá vá vá. Einnig eru pakkarnir mjög áhugaverðir og hann hvíslar "pakkar" eins og þeir séu eitthvað leyndarmál í sjálfu sér. Honum finnst jólalögin mjög skemmtileg og þau syngja mikið í leikskólanum. Adam átti syni sjö er uppáhalds lagið. Hvað varðar jólamatinn þá finnst Þorra mandarínur vondar en piparkökur og hangikjöt er vinsæl fæða. Þorri virtist vera að fatta það að hann væri að fara í spariföt og var dáldið stoltur eða montinn á svipinn þegar hann var kominn í og við sýndum honum í spegil, það var mjög gaman að því. Á áramótunum fékk hann að sjá nokkra flugelda fyrir svefninn og hann sagði endalaust vá bamm bamm, vá bamm. Hann var ekkert hræddur.
Photo album created with Web Album Generator