Vikan fyrir jól fór að mestu í hefðbundið jólastúss. Þorri fór samt í 6 mánaða skoðun og er orðinn 74 sm og 9,3 kg. Hann er orðinn nokkuð góður í að sitja og leika sér og svo er hann farinn að borða dáldið fjölbreyttan barnamat. Haddi afi kom að heimsækja okkur og við fórum í afmæli til Ólafar frænku. Síðan fórum við í mat til Siggu ömmu og Skafta afa og fengum jólamat þar. Sólveig og Rafnar komu til landsins en við náðum því miður bara einu kvöldi með þeim áður en við fórum út. Við fórum 22. desember svo við stálumst því til að opna pakkana fyrir jólin.
Photo album created with Web Album Generator