Þorri fór á stefnumót með tveimur litlum skutlum sem Dóra og Silla kunningjakonur Kristjönu eiga. Fjölskyldan fór til Keflavíkur í afmæliskaffi til Kristjáns langafa og í heimsókn til Önnu langömmu. Sólveig er loksins komin heim frá Danmörku og kom hún að sjá Þorra. Hólmfríður Bára frænka kom í heimsókn og náðust fínustu myndir af henni halda á Þorra. Þorri er farinn að brosa en því miður náðist ekki mynd af því. Annars hefur vikan farið í göngutúra í góða veðrinu og fleiri notalegheit. Auk þess er búið að fara í Þjóðskrá og skrá nafnið þar og fá vegabréf fyrir kútinn.
Photo album created with Web Album Generator