| ||
mars 25, 2004Bara eitt verkefni eftir...Ég var að enda við að gera ótrúlegt verkefni um Nestlé í aðferðafræði. Málið er að fyrir svona 20 árum var Nestlé alltaf að gefa fátækum nýjum mæðrum í Afríku prufur af formúlu mjólk. Þeir vissu að ef móðirin gefur barninu eingöngu svoleiðis þegar hún er nýbúin að fæða hættir hún að framleiða mjólk og verður því háð formúlunni. Hinsvegar gerðist það að þær áttu auðvitað ekkert efni á formúlunni og þær sem gátu keypt hana blönduðu hana í mengað vatn og börnin dóu bara. Þetta var búið að vera að gerast í 7 ár (!!!) þegar einhverjum baráttuhóp tókst að fá þá til að hætta. Allaveganna ég var að skrifa smá ritgerð um þetta. Mjög mikið hneyksli. Kristjana skrifaði 25.03.04 23:06 | TrackBack 5 Ummæli
Ég kannast við þessar deilur, lærði um þetta í Mannfræði barna. Mannfræðingurinn Nancy Scheper-Hughes benti m.a. á hverjar afleiðingar þessarar Nestle herferðar voru en hún varð einmitt vör við það að mæður í shanty towns í Brasilíu gáfu börnum sínum ekki brjóst því þær trúðu því að þurrmjólk væri hvítvoðungum mun betri fæða - svo öflugar voru þessar herferðir. Rannsókn hennar snerist einmitt um barnadauða og viðbrögð fátækra mæðra við honum. Mjög óhuggulegt mál svo ég segi ekki annað. |
Stórt Fólk
Lítið fólk
Sorpa
Tíska & Hönnun
Glósur
kristjae@hi.is
msn: kristjana_osk@hotmail.com
Leit
Eldri færslur
október 2005
september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 apríl 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 október 2003 júlí 2003 desember 2002 ágúst 2002
Nýlegar færslur
| |