| ||
febrúar 08, 2005Afmæli og letibloggið mittNú er meira en vika liðin síðan ég skrifaði síðast á þetta æðislega blogg, margt skemmtilegt hefur drifið á daga mína, ég var reyndar hálf slöpp alla síðustu viku og nennti ekki miklu. Ég fór nú samt út á miðvikudaginn með Kristínu Báru skvísu og Hönnu pæju. Við kíktum á Vegó og á Ölstofuna síðan enduðum við í Þjóðleikhúskjallaranum en þar voru einhverjar leifar frá íslensku tónlistar verðlaununum. Ég er ekkert smá ánægð með mína menn í Hjálmum að vinna verðlaun... Þeir eru alveg frábærir. Vann ekki Jagúar eitthvað líka... Ánægð með þá líka, þeir eru rosalega góðir, allavegana betri en James Brown... það geta allir staðfest sem fóru á tónleikana í sumar. Á föstudaginn fórum við til Sigga Palla og Dóru dúlluað borða sushi en þau eru sushi Meistararnir, með stóru M... Ef ég þekki Braga minn rétt er hann orðinn spesíalisti bara af því að fylgjast með þeim nokkrum sinnum. Eftir síðustu sushi færsluna mína eru nebbla allir að biðja mig um að verða boðnir í sushi. Á laugardaginn fór ég á Million Dollar Baby með Birgittu pæju, ég ætla ekkert að tala um það því þetta er þannig mynd. Ég ætla nú samt að segja frá því að hún var rosalega vel leikin og hún var ekki alveg eftir íþróttamynda formúlunni. Á sunnudaginn var ég að hjálpa Helgu tískudrottningu að mála nýju sætu íbúðina sína. Sérstaklega naut ég þess að mála herbergið hennar Júlíu Heiðar babybleikt. Ýkt dúlló. Síðan komu Baldur og Ásdís í heimsókn, Bragi eldaði lúðu og bleikju sem heppnaðist rosalega vel síðan spiluðum við spurningaspil sem þau komu með og Hættuspilið... og ég vann í hættuspilinu jibbí jei... mér finnst svo gaman þegar ég vinn ;) Núna er svo barasta komin ný vika og akkúrat mánuður í að ég verði officially gömul og það gleður mig ekki. Hinsvegar þarf Sigrún voffastelpa ekki að hafa áhyggjur af því, hún er nebbla bara 17 ára í dag og verður því ekki gömul fyrr en eftir 8 ár. ![]() TIL HAMINGJU SÆTA :) 0 Ummæli
Post a comment
|
Leit
Eldri færslur
desember 2007
maí 2007 desember 2006 nóvember 2006 september 2006 júlí 2006 júní 2006 mars 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 apríl 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 október 2003 júlí 2003 desember 2002 ágúst 2002
Nýlegar færslur
| |