febrúar 10, 2005

Brækur og tískulöggan

Nú er loksins komin á stokk alvöru tískulögga. Sko ein vinkona mín kallar það sem ég kalla nærbuxur alltaf brækur og g-streng kallar hún strengjabrók. En nóg með það. Mér finnst ótrúlegt hvað stjórnvöld (í þessu tilviki í USA) leyfa sér stundum að vafsast mikið inn í líf fólks... Las ég þessa grein á mbl og varð mjög hissa. Nú er málið það að þingmenn í Virginíu vilja banna það að nærbuxur sjáist upp úr buxunum. Eins gott að vera bara ekkert í nærbuxum ef maður fer til Virginíu, allavegana ekki ef maður er í lágum buxum og ætlar eitthvað að vera að teygja sig fram eða eitthvað. Ekki taka sjensinn á að vera hent í steininn.


Kristjana skrifaði 10.02.05 11:02
10 Ummæli

Já hehe góður punktur :D Ætli það verði þá bannað að sýna Súperman í sjónvarpinu í virginíu?


Ég veit að umræðan er tekin að eldast en ég bara verð að bæta við kommenti... Ameríkanar eru jú ógeðslega skrítnir og mikils ósamræmis gætir á milli orðs og æðis. Það má helst lesa úr því að ein frægasta ofurhetja þeirra hafði þann ágæta hátt á að klæðast nærbuxum utanyfir spandexbuxurnar sínar en núna á að banna fólki að láta nærbuxurnar gjægast smá. Þeir hefðu þá bara átt að gefa unga fólkinu aðrar fyrirmyndir ef þeir eru ekki tilbúnir til þess að súpa seyðið af þessu og sveiattan bara.


Hahahaha eins gott að Britney fari ekkert að heimsækja Virginu en hvernig er það þegar fólk er að labba út á götu og það sést kannski smá í nærbuxurnar fær fólk þá bara einhverjar himinháar sektir:S úfff ameríka ... Svo má fólk ganga um með byassur og alskins svoleiðs rugl en smá nærbuxur jafnar við hryðjuverk hahahaha


Ég var að spjalla við frænku mína sem býr þarna og hún hafði ekkert heyrt minnst á þetta. Hún hló og hló og sagði bara að þeir hefðu ekkert betra að gera :)


já þetta er ríki rauðra hálsa.
Fyndið að þessar kexkökur sér svo að boða út 'lýðræði' við Persaflóa...
...ég á ekki nokkuð einasta orð.


En þokkalega er það nú í lagi að brækur með strengjum eða án gjægist stöku sinnum upp úr. Ég held að Viktoría, gamla Tjalladrottning, sé upprisin (a.m.k. tíðarandinn) sem 60 atkvæði í Virginíu. En mér finnst kúl, eins og kom fram hjá BBC, að þeir hinir sömu ættu að rifja upp eigin tískumistök, hehe.


Já nákvæmlega, þetta er farið að líkjast fasistaríki alveg óttalega mikið. Krakkar í skólum þar eru yfirleitt látnir sverja eið við fánann á hverjum morgni. En þessi stelpa er ekki að norðan, hún er frá Keflavík, minnir samt að mamma hennar sé öll í þessu líka, hefur líklegast fengið það frá henni. Mér finnst svo fyndið að tala eins og gömul krumpuð harðjaxla kerling :)


Ég sver það, eftir 50 ár verður USA orðið pjora fasistaríki.
En er þessi vinkona þín sem kallar nærbuxur brækur, frá norðulandi? Mamma er að norðan og er öll í þessu, "hysjaðu upp um þig brækurnar". Mér leið alltaf svolítið eins og ég byggi í torfbæ þegar ég var lítil. Þetta er soldið Sveitó finnst manni!!


kommon! frelsi til að velja - og hananú!


Ég var að sjá að Baldur félagi minn (sem er hér á kantinum) bloggaði um sama hlutinn í gær... Hann er að tala um hvað þetta sé mikil hræsni hjá könunum þar sem þeir séu alltaf að hneykslast á öðrum þjóðum sem banna mönnum að raka skeggið sitt og fl. Alveg sammála þeim punkti líka.



Leit


Eldri færslur
Nýlegar færslur