| ||
júní 30, 2006Spánn, London, Freakonomics og lokaverkefnið mittÉg og Bragi vorum að koma frá Spáni. Við fórum með Fríðu, Martín, Ásu og Konstantin og auðvitað honum Mattías litla megakrútt. Við vorum í tvær vikur, fyrst fórum við til Torrevieja. Það er mikill túristastaður, alveg tilvalinn fyrir fólk sem er sama um allt ef það kemst á sólarströnd. Við Bragi erum ekki þannig fólk, en þar sem við vorum með góðu fólki þá skemmtum við okkur rosalega vel. Við keyrðum til Albir einn daginn og heimsóttum Lilju frænku sem var þar í fríi. Við kynntumst nokkrum rosalega góðum fiskréttum í Torreveija, Sepia og Tjapitos (hef ekki hugmynd hvernig það er skrifað) Seinni vikunni eyddum við í Barcelona. Þar vorum við í æðislegri íbuð með risa risa þaksvölum bara fyrir okkur. Við vorum mjög hrifin af matnum þar og menningunni. Það var frábært í Barcelona þangað til á mánudaginn en þá fékk ég alveg heiftarlega hálsbólgu og þurfti að eyða síðasta 1 og 1/2 deginum í Barcelona veik inní óloftkældu íbúðinni okkar. Það var ekki alveg jafn skemmtilegt. Spánn er orðinn rosalega dýr miðað við hvernig Spánn var áður. Mér finnst verðlagið þar bara vera svipað og í Hollandi sem er almennt ekki talinn ódýr staður. Þeir eru algerlega að pissa í skóinn sinn með þessum verðhækkunum. Þeir græða kannski meira í eitt-tvö ár en síðan eiga þeir sem sækjast eftir ódýrum fríum eftir að fara eitthvað annað. Nú þegar eru miklu fleiri farnir að fara til Króatíu og fleiri staða sem hafa það sama upp á að bjóða bara miklu lægra verð. Hugsanlega er Spánverjunum alveg sama, vilja bara losna við lágstéttar Bretana og vonast til að fá í staðinn fólk sem er tilbúið að borga meira og hefur jafnframt hærri staðla hvað varðar mat, umhverfi og menningu. Þeir Spánverjar sem ég talaði við í Barcelona skömmuðust sín þegar ég sagðist hafa verið í Torreveija. Þeir afsökuðu sig mikið og sögðu að það væri ekki alvöru Spánn og við þyrftum að skoða þetta og hitt. En það hlýtur hver sem er að sjá að Torreveija (eða Benidorm, Costa Del Sol eða hvað þetta allt heitir) er ekki "Spánn". Á leiðinni heim áttum við 9 klst stopp í London. Ég er ein af mjög fáum Íslendingum sem hafði aldrei komið til London. Klukkan 12 á hádegi vorum við búin að ná í töskurnar okkar og koma þeim fyrir í left luggage. Við ákváðum að eyða deginum í litlum bæ nálægt Stanstead sem heitir Bishops Stratford (eða e-d solleis) því það er svo dýrt að taka lestina til London og tilbaka (sirka 3000kr á mann). Við keyptum lestarmiða til smábæjarins á 3 pund á mann og settumst uppí lestina. Lestin fór af stað og var heil lengi án þess að stoppa, allt í einu vorum við komin inní London og drifum okkur út áður en við yrðum gómuð af hinum illu lestararvörðum. Þetta var ágætt eftir allt saman. Ég fékk að sjá þar Big Ben, Westminister Abbey og margt fleira. Þetta var alveg þess virði. Í flugvélinni heim frá London las ég bókina Freakonomics, hún er um hagfræðing sem "notar leiðir hagfræðinnar" til að finna svör við ýmsum spurningum. Í rauninni er hann bara að hvetja fólk til að nota gagnrýna hugsun og er að segja að fólk megi ekki trúa í blindni því sem sérfræðingar segja og kemur í blöðunum. Svo notar hann tölfræðiaðferðir (línulega aðhvarfsgreiningu ;0 ) til að reikna allskonar hluti út úr hinum ýmsu gagnagrunnum sem hann kemst yfir. Fín létt flugvélalesning. Ég hafði sérstaklega gaman af kaflanum þar sem hann gerir tölfræðilega úttekt á ýmsum hlutum sem hafa áhrif á árangur barna í skóla, þar kemur fram að ýmsir hlutir sem foreldrar gera hafa barasta engin áhrif. Hann er mjög mikið á móti "obsessive parenting" sem er að mínu mati alveg óþolandi fyrirbæri (allavegana þangað til ég eignast sjálf barn og verð líklegast svoleiðis). Lokavernið mitt er vel á veg komið. Mér gengur mjög illa að fá upplýsingar hjá ýmsum aðilum til að gera kostnaðaráætlun. En ég verð að skila verkefninu í lok sumars því í haust ætla ég í meistaranám í fjármálum fyrirtækja í HR en inngangan er háð því að ég klári BS-inn í haust. Undanfarið (síðan í apríl) hef ég verið mjög upptekin, fyrst próf svo lokaverkefnið, ferð til Hollands og til Spánar og svo er ég auðvitað að vinna á daginn. Það er fullt af fólki sem mig hefur langað að hitta en ekki hefur gefist tími til. Vonandi fer ég nú að geta bætt úr því fljótlega því ég er farin að sakna margra rosalega mikið. Kristjana skrifaði 30.06.06 14:46 3 Ummæli
Hello, nice site look this hmtest: End ^) See you |
Leit
Eldri færslur
desember 2007
maí 2007 desember 2006 nóvember 2006 september 2006 júlí 2006 júní 2006 mars 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 apríl 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 október 2003 júlí 2003 desember 2002 ágúst 2002
Nýlegar færslur
| |