25 júlí, 2003

Kristjana matargat og Bragi matargat

Jibbí ég og Bragi erum bæði í fríi um helgina, ein af þrem helgum í allt sumar. Ég hef verið að vinna svo mikið og ekki haft tíma til að skrifa, hvað þá eitthvað skemmtilegt að skrifa um. Við keyptum okkur túnfisksteik til að grilla í kvöld og svo ætlum við að borða roast beef á morgun. Kristján ætlar að koma með kjöt í carpaccio heim á eftir, mmmm... uppáhalds maturinn minn. Svo verður djammað mikið mikið á morgun og kannski í kvöld líka. Jibbí jei :)

Kristjana skrifaði 05:09 EH | 148 ummæli

18 júlí, 2003

Esjan

Í dag löbbuðum við Bragi upp á Esjuna ásamt Jósa og Agli. Það var ógeðslega erfitt. Við þurftum að stoppa óendanlega oft á leiðinni upp en svo í lokin var eins og ég fengi adrenalín sprautu í rassinn og ég klifraði á fullum krafti síðustu metrana og náði meira að segja fyrst á toppinn. Jibbý :-) Svo hlupum við niður á fullri ferð. Mér fannst það rosalega gaman, ekkert ósvipað draumi sem mig hefur oft dreymt um að ég sé að hlaupa í sveitinni hjá ömmu og afa og þar hleyp ég rosalega hratt og svíf eiginlega á milli þúfna og snerti varla jörðina, nánast fljúgandi, anda að mér fersku lofti og allt virkar einhvernveginn svo létt og auðvelt og mér líður eins og það sé ekkert sem ég get ekki. En lífið er ekki svona auðvelt -nema maður sé á leið niður.....

Kristjana skrifaði 12:06 FH | 0 ummæli

17 júlí, 2003

Chocolate Fantasy

Í gær var gott veður. Jibbý. Ég og Bragi sinn fórum með Sigga Palla á Tapasbarinn í hádeginu og fengum okkur mikið mikið góðan mat og chocolate fantasy eftirrétt. Mmmmm... Eftir það þurfti ég að fara að vinna í Bossanova, var búin að lofa aukavinnu þennan dag. Tíbískt bara af því að það var mega gott veður, en til að gera þetta allt saman skemmtilegra skrifaði ég á mig skó. Jibbý jei. Kristjana gleðideppa núna.

Kristjana skrifaði 12:47 EH | 0 ummæli

16 júlí, 2003

Ferðalag

Við Bragi fórum í Þjórsárdal með risa stórt tjald um helgina. Við fundum rosalega flottan stað til að tjalda og þegar við vorum búin að grilla fórum í langan göngutúr í flottum skógi, það var rosalega gott veður og ýkt gaman. Alli og Jórunn komu svo með dúlluna sína hann Bjarka Marínó og settu tjaldvagninn upp hjá okkur. Við fengum okkur rauðvín og bjór og spjölluðum fram á nótt. Þegar við vöknuðum á laugardeginum vorum við bæði komin með bakverk og það var komin rigning. Við gerðum gott úr því og fórum í bíltúr, kíktum m.a. í sætustu sundlaug á Íslandi. Innan í karlaklefanum var hreiður og þrír pínulitlir fuglar sem mældu út gæjanna. Ég stalst auðvitað inní karlasturtuna og kíkti á þá. Seinna um daginn færðum við tjaldið til Benna og Magneu sem voru í hjólhýsahverfi þarna nálægt. Benni og Alli spiluðu svo á gítar fram á nótt og við sungum ýmis misgóð lög. Ýkt gaman. Nú er bara að plana næsta ferðalag. Þarnæstu helgi. Jibbí.

Kristjana skrifaði 12:33 FH | 2 ummæli