25 desember, 2003

Kalkúnarokk og gjafir..... :-)

Gleðilega ljósahátíð góða fólk.

Ég er búin að vera að slappa af með fjölskyldunni minni en þau komu í heimsókn til okkar yfir jólin. Gaman að fá mömmumat um jólin. Kalkúnn rokkar! Annars erum við búin að hafa það æðislega gott. Við fengum rosalega mikið af gjöfum þar má helst nefna DVD spilara og sushi matardiska, vél til að búa til pasta, handklæði, trefla, kertaskreytingu, blómavasa, salatskál og eldfast mót til að bera fram í, við fengum líka æðisleg sjampó og hárnæringu. Síðast en alls ekki síst fengum við líka gjafabréf og pening upp í borðstofuborð sem við erum að fara að kaupa. Frá ástinni minni fékk ég svo nýjan síma (Vei ekkert meir erickson kjaftæði), peysu, eyrnalokka og snyrtidót. Ég gaf honum braga mínum svo frakka og feita heimspekibók sem honum langaði í. Í dag jóladag eru svo 3 jólaboð, nú er eitt eftir, verð að fara.

Kristjana skrifaði 06:46 EH | 166 ummæli