|
|||
31 mars, 2004Þreytt og enginn tími til að læraÞessa dagana standa yfir umfangsmiklar breytingar í vinnunni minni, við erum s.s. að setja upp nýjar innréttingar, við þurftum auðvitað að tæma allar hillurnar og raða öllu upp aftur, mér finnst svo ógeðslega gaman að raða, vona bara að stelpunum í vinnunni finnist ég ekki alltof frek í þeim málum... hehe :) Eníveis þá hafa síðustu 2 dagar (og væntanlega verður sama plan á morgun)farið í þetta og lítið annað verið gert eða hugsað þannig að blogg dagsins er ekki ýkja skemmtilegt... Þarf að nota helgina til að vinna upp það sem ég er að missa úr skólanum þessa vikuna, ætla samt að skella mér á djammið á laugardaginn :) Kristjana skrifaði 06:46 EH
| 141 ummæli
29 mars, 2004Mitt, þitt, enskis, allra ???Hverjum ætli hafi fyrst dottið í hug að hann ætti eitthvað? Nú er ég alls ekkert á móti eignarréttinum!!! Dýr þykjast eiga ákveðin svæði, þau merkja sér þau með því að pissa á það eða eitthvað svoleiðis. Eitt það fyrsta sem menn læra þegar þeir fæðast er að þeir eiga þetta og hitt og mamman og pabbinn eiga annað. Síðan þessi hugmynd læddist inn í kollinn á mér hef ég ekki getað sleppt henni. Mig langar svo að geta skilið hvernig það væri ef enginn ætti neitt, öll menning byggir á þessu, allt á jörðinni. Þvílíka ringulreiðin ef svo væri ekki. (eða hvað) Ég held að ótrúlegur þroski gæti falist í því að geta af-lært (er það orð) hluti sem eru svona djúpt grafnir í vitund manns. Samt kannski eru svona pælingar bara rugl og kannski græðir maður ekkert á því að vera að hugsa um svona. Myndir og Hobbita skórÞangað til myndaalbúmið mitt kemur upp ákvað ég að setja nokkra linka inní albúmið hans Stebba, s.s. myndir af skemmtilegu áramótapartýi og flutningunum okkar og gömlu djammi frá í fyrra. Alltaf gaman að skoða myndir. Mér finnst það allaveganna, ég er myndaóð.... Eníveis þá sá ég þessa ótrúlega ljótu skó þegar ég var að skoða haustsýningu Helmut Lang. Ætli hann hafi verið að horfa á LOTR kallinn?
Það verður gaman að sjá hvort einhver leikkona fari í svona á einhverjar forsýningar eða á einhverjar verðlaunahátíðir og verði valin verst klædda kellingin.... Kristjana skrifaði 12:10 EH
| 140 ummæli
26 mars, 2004Business gellur í flottum skóm og með flottar töskurÉg hef verið að skoða Style.com svolítið undanfarna mánuði. Alltaf svo gaman að skoða í febrúar/mars þegar hausttískan kemur inn. Ég hef alltaf verið rosalega upptekin af skóm. Þetta byrjaði þegar ég var pinku lítil en það var bara vegna þess að ég var svo mikill skóböðull einsog mamma mín kallaði mig. Ég náði alltaf einhvernveginn að gera göt og rífa skóna mína eftir viku. Ég er búin að vera að hugsa um mína tísku-framtíð og sé fyrir mér að þegar ég klára skólann þarf ég örugglega að hætta að vera alltaf í gallabuxum og peysu alla daga ( einsog ég geri núna amk. á veturna) og fara að vera í fullorðinslegri vinnufötum. Þá fór ég að hugsa að líklegast væru skór og töskur helsta leið kvenna (t.d. lögfræðinga og fjármálaskvísna) til að klæða sig eins og þær vilja og/eða skv. tískunni en á sama tíma vera pró í útliti og traustvekjandi.. Hér eru uppáhalds töskurnar og skórnir mínir úr haustlínunum: 25 mars, 2004Bara eitt verkefni eftir...Ég var að enda við að gera ótrúlegt verkefni um Nestlé í aðferðafræði. Málið er að fyrir svona 20 árum var Nestlé alltaf að gefa fátækum nýjum mæðrum í Afríku prufur af formúlu mjólk. Þeir vissu að ef móðirin gefur barninu eingöngu svoleiðis þegar hún er nýbúin að fæða hættir hún að framleiða mjólk og verður því háð formúlunni. Hinsvegar gerðist það að þær áttu auðvitað ekkert efni á formúlunni og þær sem gátu keypt hana blönduðu hana í mengað vatn og börnin dóu bara. Þetta var búið að vera að gerast í 7 ár (!!!) þegar einhverjum baráttuhóp tókst að fá þá til að hætta. Allaveganna ég var að skrifa smá ritgerð um þetta. Mjög mikið hneyksli. 24 mars, 2004Bara allt að gerastJá dagurinn í gær var viðburðarríkur með afbrigðum. Ég var í vinnunni og missti af öllu aksjóninu í hádeginu, þ.e. skólagjalda mótmælunum. Ég frétti að hann Bragi minn hafi látið vel til sín taka þarna. Á meðan á öllu þessu stóð var allt að gerast í vinnunni minni, fríhöfnin full og tollararnir á fullu við að bösta burðardýr. Það er svo gaman þegar mikið er að gerast... Í gærkvöldi kíkti ég svo á brennsluna með Hönnu og síðan á Prikið að kíkja í blöðin. Í dag fórum við Bragi í lakkrís verksmiðjuna að kaupa lakkrís, ýkt gott að kaupa nýjan mjúkan lakkrís og líka miklu ódýrara (Já Anna skvís ég kem með svoleiðis til þín næst þegar ég kem)... nammi namm Kristjana skrifaði 01:17 FH
| 104 ummæli
19 mars, 2004Kanar á leið til Færeyja...Rekstrarhagfræðipróf á morgun.... Búin að gera öll dæmablöðin aftur (hmm sum aftur en önnur í fyrsta skiptið) Prófið gildir bara til hækkunar þannig að ég geri bara mitt besta, er ekkert að farast úr áhyggjum. Annað kvöld verður svo væntanlega gert eitthvað skemmtilegt. Ég er búin að vera að deyja úr leiðindum vegna peningaleysis en það fer að lagast fljótlega!!!Jibby jei.... Annars smá vinnuröfl líka.... Btw mér finnst hárið á Christinu soldið flott.. Hún er alltaf að skipta um stíl... 18 mars, 2004BarbieÉg hef alltaf haldið mikið uppá Barbie, (Ekki Klaus Barbie!!!) þegar ég var 7 ára hélt ég að ég væri of gömul til að leika með Barbie og seldi stelpu í götunni allt dótið, húsið, bílinn og sundlaugina. Dömpaði kallinum og skildi krakkana eftir. Síðan stakk mín af til Ameríku. Ekki er allt gull sem glóir og því vestar sem ég fór saknaði ég dótsins meira og óskaði þess að hafa tekið það með mér. Þessi vonbrigði rifjuðust upp fyrir mér þegar ég tók þetta próf... Vonbrigði, ég fékk nebbla barbíe með ljótan rass.... Hinsvegar finnst mér þessi mynd soldið fyndin, hún er líka sætari, veit samt varla hvort það hefði verið betra að vera hún...
Þessi er líka frekar fyndin.
14 mars, 2004ReunionÍ gær var reunion hjá árgang '80 haldið í Kef. Það var rosalega gaman, ég hitti gömlu gellurnar í klósettgenginu og alla hina krakkana. Við borðuðum rosa góðan mexikó mat og fórum svo í leiki, við fórum í söngvakeppni og söfnunarleik þar sem Ásdís fór fyrir okkar borði, það var farið úr sokkum, skóm og nærbuxum og sokkabuxum, við duttum úr leik þegar Styrmir, sem var eini strákurinn á borðinu okkar, vildi ekki fara úr nærbuxunum sínum. Síðan var farið í stólaleik þar sem ég stóð mig ýkt vel!!! Var í lokaslagnum með honum Marvin en hann vann mig :-( Eftir leikina var dansað og spjallað. Gaman gaman :-) Eftir mikið djamm var haldið á kaffi duus og dansað þar til lokunar, síðan fóru flestir á Casino en þá kom Bragi sæti að sækja mig. Alveg ömurlegt... það sprakk hjá okkur þegar við vorum komin inní hafnarfjörð!!! Ömurleg óheppni ..... Eftir nokkra daga set ég upp gallerí á þessa síðu og þá verður hægt að skoða myndir af þessu öllu. 8 mars, 2004Afmælispartý Á laugardaginn hélt ég uppá afmælið mitt. Það var drukkið og djammað fram á nótt, við bjuggum til bollu og svo gekk Tim um með Jagermeister flösku sem hann keypti í tollinum og tilraunaglös og hellti uppí fólk. Ég fékk pakka !!! :) Tryggvi gaf mér mjög fyndna bók sem kennir manni að búa til andlit og dýr og svoleiðis úr ávöxtum og grænmeti. Hún heitir "Play With Your Food" og vakti hún mikla lukku í partíinu. Aníta og Birgit gáfu mér rosalega gott rauðvín sem ég ætla að geyma, þið vitið svona... for a special occasion. Helga gaf með geðveikan bol og svo gaf Tim mér svona plagg í myndaramma sem er stílað á mig og það stendur hvernig þeir sem eiga afmæli þennan dag eru. Eitthað svona numerology/stjörnukorts dæmi. Gummi tískulögga gaf mér síðan tvö belti. Um klukkan þrjú var haldið niðrí bæ, við fórum á Pravda, við splittuðumst öll upp nema ég og Gummi, við hittum Ellu gellu og fórum að djamma með henni. Charlies Angels....
5 mars, 2004Sex and the city byrjar aftur naesta fimmtudag....Vei vei.... annars er thad ad fretta ad nuna er eg ad fara uppi Odda ad gera rekstrarhagfraediverkefni og svo er eg ad fara ad vinna uppi frihofn. I kvold kemur svo Tim vinur okkar og vid forum ad saekja hann uppi flugstod um midnaetti. Svo verdur bara mikid gaman um helgina. A morgun erum vid ad fara i biltur uppa Akranes, erum ad fara ad skoda eitthvad land eda lod eda eitthvad svoleidis sem hann er ad hugsa um ad kaupa fyrir husid sitt a islandi. Tha verda orugglega teknar einhverjar flottar myndir. Verst ad thad er (held eg, kann thad allaveganna ekki) haegt ad uploada a blogger, annars gaeti eg synt allar flottu myndirnar sem vid erum buin ad taka.... Kristjana skrifaði 02:09 EH
| 227 ummæli
3 mars, 2004skura, skrubba & bona... Rifa af ollum skona... lalalala lalalala... laI gaer var eg ad skafa fullt af gamalli malningu af flisunum a badinu hja mer. Thad var malning svona sentimeter inna flisarnar allsstadar.... Thad er otrulegt en thad hefur greinilega ekki verid gert sidan 1978 eda um thad bil, en tha var einmitt karrigulur vinsaell litur til ad mala badherbergi. Eg skafadi af hvitamalningu, blaa, drappada og svo karrigula nedst..... Thad hefur s.s. enginn skafad thad sem hefur farid utfyrir i svona 25 ar!!!! 2 mars, 2004Sex and the CityNu er sex and the city buid!!! RUV a reyndar eftir ad syna nokkra thætti ur sidustu seriunni. Eg er buin ad lesa allt um sidustu thaettina a netinu www.hbo.com/city og sa að Carry byrjar aftur med Big -eg helt med honum allan timann....
|
Stórt Fólk
Lítið fólk
Sorpa
Tíska & Hönnun
Glósur
kristjae@hi.is
msn: kristjana_osk@hotmail.com
Leit
Eldri færslur
október 2005
september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 apríl 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 október 2003 júlí 2003 desember 2002 ágúst 2002
Nýlegar færslur
| ||