|
|
30 apríl, 2004Nörd sem er kannski með góðar fréttirÉg er búin að læra svo mikið að ég er orðin algjört nörd, þessi mynd var tekin af mér í gær þar sem ég leit upp úr bókunum. Það er alveg ljóst að ég mun ekki fara út á meðal fólks fyrr en ég er búin að sletta á mig brúnkukremi eða fara í ljós og í strípur og fá mér ný gleraugu.... Ég verð kannski (ég sagði kannski !!! ) með góðar fréttir handa ykkur fljótlega... ef svo verður þá munu þær innihalda eftirtalin orð: snekkja, fótbolti og púrtvín !!! Vú hú jibbí jei og jolly cola 29 apríl, 2004Ha æfa??? Æfa hvað???Jæja er þá ekki kominn tími til að byrja að æfa??? Verða eins og Jamie Lee Curtis eða Jane Fonda hér í gamla daga ;) Maður verður svo stirrður og illt í bakinu ef maður hreyfir sig ekkert !! Ég held ég byrji á föstudaginn, þá fæ ég nebbla útborgað og get keypt kort. Núna þarf ég bara að finna mér eitthvað æfingaprógramm svo ég geti byrjað af krafti !! ![]() 27 apríl, 2004Það fyndnasta á netinu !!!!ókey gott fólk þetta er það fyndnasta á netinu!!!!! Kveikið á hljóðinu !!!! Ég var ein heima í tölvunni í krampa heheheh !!! Partý sjúka neon pakk og kettlingar!!!Ég og Bragi fórum að skoða kettlings áðan, þeir eru 4 daga gamlir og líta frekar út eins og hamstrar en kisur en þeir eru ótrúlega sætir, annar heitir depill eins og sætu dýri sæmir, svo er annar sem heitir boris og er hvítur með gráan hanakamb og gráar doppur sitt hvorum megin við hann... við ætlum kannski að eiga annan hvorn... Jæja kremkexin mín... eruð þið búin að hlusta á skemmtilegasta lag í heimi???? Farið hingað inn og ýtið á Rebellinn !!! 26 apríl, 2004Úff fyrsta prófið búið !!!Jei !! Nú er fyrsta prófið mitt búið !!! 5 eftir !! Ég held að ég eigi skilið að fá mér quiznos... Vúhú... ef ég bara næði í Braga til að fá bílinn hjá honum.... Kristjana skrifaði 12:00 EH
| 131 ummæli
25 apríl, 2004læri læri... tækifæriÍ gær fór ég til Helgu sætu að horfa á ungfrú Reykjavík. Alltaf gaman að horfa á svoleiðis sýningar sérstaklega þar sem það var ekki nema einn kjóll af sautján hannaður af Jórunni Karlsdóttur ljótukjólameistara. Kellan sú er ekki alveg hip og kúl ;) Fyrsta prófið mitt (Upplýsingatækni) er eftir 31 klukkutíma !! Það gildir reyndar ekki nema 35%, ég er búin að fá ágætis einkunn fyrir ein 30% og svo er prófað í síðustu 35% á fimmtudaginn. Ótrúlegt hvað þarf að hafa mikið fyrir þessum 3 einingum !! Við fórum samt í matarboð til Dísu og Hlyns áðan og fengum æðislegan tælenskan kjúklingarétt, nammi namm. Við erum líklegast að fara með þeim laugaveginn (eða eitthvað annað skemmtilegt) í sumar. Jibbí jei !!! BTW KÍKTIRU EKKI ÖRUGGLEGA Á KJÓLINN ??? 22 apríl, 2004S U M M E R T I M EÍ morgun vaknaði ég við að Bragi var að blasta gamla laginu "Summertime" með Fresh Prince (ó mæ god hvað hann var dýrkaður hérna, ja fyrir rúmum áratug ;) en það er önnur saga) og sumarskapið barasta sveif yfir mann !!! En annars komu Dísa, frænka hans Braga, og hann Hlynur hennar í heimsókn og við fórum í grill til tengdó !! Nammi namm... Fullkomin sumarbyrjun ! 21 apríl, 2004Labbitúr í hverfinu ....Eftir að hafa eytt deginum í lestur ákváðum við Bragi að fara í labbitúr um leið og hann kom heim úr vinnunni. Við löbbuðum með myndavélina í kirkjugarðinn og nánasta nágrenni... hér er afraksturin... ![]() Kristjana skrifaði 07:16 EH
| 132 ummæli
Sérfræðingurinn ég !!!Er það ekki þannig að þegar maður heldur loksins að maður kunni rosalega mikið þá kann maður ekki neitt ?? Ég er búin að vera að læra fyrir próf núna í töluvert marga daga... Tvo síðustu daga er ég búin að vera að læra markaðsfræði... og mér finnst ég kunna ógeðslega viðbjóðslega mikið í þessu !!! S.s. annaðhvort kann ég ógeðslega mikið núna.... eða.... er bara vitleysingur af bestu gerð.. ![]() Hef ekki neitt til málanna að leggja í dag.. þ.e. nema þú viljir ræða við mig um markaðsetningu á þjónustu þá er ég snillingurinn ... 18 apríl, 2004Í flottum galla í rússibana !!!Þegar maður er að læra fyrir próf er rosalega freistandi að hraðspóla áfram í huganum þangað til prófin eru búin. En þá ætla ég að skella mér til Hollands að heimsækja familíuna og versla.... Ég ætla að kaupa allnokkra flotta galla fyrir mig og töffarann minn. Vonandi gefst tími til að fara Í RÚSSIBANA í Six Flags !! Það er svo gaman... Queer eye for the straight GIRL !!!Vei hvað þetta er spennandi QUEER EYE FOR THE STRAIGT GIRL !!!! Vonandi verður þetta sýnt hérna á landi íss og elds. 16 apríl, 2004Langar í !!!!Jamm minns langar í svo mikið.... 15 apríl, 2004Bjartur BlámiUm helgina fórum við í sumarbústað á Flúðir, það var mjög næs, við drukkum bjór í pottinum og borðuðum grillmat. S.s. ekkert óvenjulegt, bara nákvæmlega eins og sumarbústaðaferðir eiga að vera. Við fórum síðan í bíltúr á gullfoss í rigningunni. Á mánudaginn var síðan farið aftur í bíltúr í þægilega bílnum hans Gumma markmiðið var að taka myndir af honum Bjarti Bláma mínum. Væntanleg er bók með ljósmyndum um íslands ferð hans.
14 apríl, 2004Fermingarafmælis myndirJæja þá eru myndasafnið loksins tilbúið!!!! Þetta er búið að taka svo langan tíma því ég ætlaði fyrst að hafa öðruvísi myndasafn en svo ákvað ég að skella bara upp svona einföldu albúmi því hitt var svo mikið vesen.... Allaveganna er hann Jósi vinur okkar búinn að hjálpa mér ótrúlega mikið og vil ég þakka honum þúsund sinnum fyrir!!!! 9 apríl, 2004Páskarnir nálgast og spennan eykstÉg er að farast mig langar svo að borða páskaeggið mitt núna.... ekki á morgun heldur hinn ætla ég að stilla vekjaraklukkuna ýkt snemma svo ég geti borðað páskaeggið mitt. Ég vona að Bragi feli það ekki og láti mig leita.... Einusinni þegar ég var lítil gafst ég upp á að leita af páskaegginu mínu og ætlaði bara til Jónu að leika og þá fann ég páskaeggið mitt í hettunni á úlpunni minni... Hvort það var í felum þar eða hvort mamma mín setti það bara þar þegar hún sá að ég var búin að gefast upp.... það mun ég sennilega aldrei vita því hún er örugglega búin að gleyma þessu en ég hlýt varanlegan skaða af og á líklegast ekkert eftir að þora að sofna á laugardaginn. Í öðrum fréttum er ég búin að vera með ógeðslega flensu nánast alla vikuna og líklegast búin að skoða bloggin hjá öllum á íslandi og ýmsum útlenskum líka og svo hef ég horft á ýmislegt misgott t.d. Jesus Christ Vampire Hunter sem er örugglega ódýrasta B-mynd sem nokkur á Íslandi hefur séð, hún var samt alveg kúl sko..... Jesús snýr aftur sem kung fu töffari.. Afrakstur undanfarinna daga: S.s. einstaklega viðburðalitlir og sorglegir dagar.... 6 apríl, 2004Helga farin að bloggaJamms þá er helga komin með blogg líka..... http://anais.blogdrive.com hún mun eflaust skrifa skemmtilega hluti, enda hún mjög góður penni og var m.a. að skrifa tískugreinar fyrir undirtóna einusinni. Hún á líka svo sæta litla stelpu en það koma örugglega margar myndir af henni.... Kristjana skrifaði 03:14 EH
| 221 ummæli
Lasin.... :(Oooooo.... trúi þessu ekki! Ég er lasin... Ég hélt í gær að minns væri bara þreyttur útaf því ég svaf svo lítið en þegar leið á kvöldið í gær var það alveg orðið ljóst að ég væri bara með ógeðslega hálsbólgu. Bragi minn var góður og kom með fullt af blöðum til mín að lesa og svo horfði ég á OC og nip/tuck. En í betri fréttum... Fríða frænka frá Spáni er á landinu núna, í hádeginu í gær fórum við saman að borða á Sólon og síðan kom hún og Finna frænka í kaffi til mín. Fríða lifir bara í lukku en ekki í krukku á Spáni, komin í gott djobb hjá háskóla í Barcelona og ástfangin af myndarlega listakokkinum sínum... 5 apríl, 2004Góðtemplarinn ;-)Við Bragi vorum ýkt heppin í gær, það var þannig að Gummi hringdi í okkur og spurði hvort við vildum borða saman og við vorum auðvitað til í það, héldum að það væri eitthvað casual, en neeeeiii Gummi mætti á svæðið með æðislega steik og salat með öllum græjum og nammi namm hvítlaukskartöflur... ógeðslega gott og ekki nóg með það heldur voru líka jarðaber, melónur og eitthverjir fleiri ávextir sem hann setti í blandarann og maukaði og blandaði svo við vodka og magic og kölluðum við nýja kokteilinn Góðtemplarann enda ekkert áfengisbragð af honum... ;) Bragi þurfti því miður að fara að vinna en Hanna kíkti með Kidda sinn og Gísla félaga þeirra og við fórum á Prikið og á Pravda og skemmtum okkur fram eftir nóttu við mikinn fögnuð annarra gesta skemmtistaðanna enda við svo skemmtilegt og æðislegt fólk eins og þú sem ert að lesa þetta eflaust veist ;) hehe :) Áðan kíktu líka Heiða og Svavar á okkur og við fórum með þeim í keilu gaman gaman... Ég vann ;) Hehe..... Í dag var síðan kíkt í myndatökubíltúr og hér er ein myndin sem ég tók....
3 apríl, 2004Metrosexual ???Metrosexuality..... metrosexual Þetta hljómar rosalega vel... flottur gaur sem nennir með manni að versla. Sumir strákar líta svona gæja hornauga, finnst þeir glataðir og sorglegir, en ég fór að pæla í því að eru þeir ekki bara í einhverri annarri tísku? Undanfarin 6-8 ár hefur tískan verið meira og minna víðar buxur (hvort sem þú ert “skoppari” eða svona grunge gæi) bolir með allskonar myndum eða skyrtur hafðar útfyrir buxurnar og hárið frekar svona mikið og sítt. Þið fattið hvað ég á við. Núna er tískan hinsvegar að taka nokkrum stakkaskiptum og kominn tími til að halda áfram... Hvað er samt málið með Becham??? Er hann ekki búinn að taka nýju tískuna soldið langt? Bottega Vaneta og Dolce & Gabbana Versló vann !!!!! ;)Jibbý jei og jolly cola Verslo vann Borgó (og MR) í Gettu Betur í gær!!!! 2 apríl, 2004Þessi færsla heitir ekkertÍ dag er ég að reyna að skipuleggja próflesturinn... það er alveg magnað hvað manni finnst maður alltaf þurfa að gera margt áður en próflestur getur hafist. Ég t.d. verð alltaf að laga til alveg rosalega vel, þvo allan þvott og ganga frá ýmsum hlutum sem setið hafa á hakanum í einhvern tíma. Í dag er s.s. dagurinn sem ég geri þessa hluti... Um helgina verður svo gaman gaman og síðan byrjar alvara próflestursins eftir helgina... Annars í öðrum fréttum: Skór og töskur (er þetta nokkuð eðlilegt lengur) Stígvél: Balenciaga. Veskin: Bottega Vaneta. Hvítir skór: John Galliano
Veit ekki alveg hvað mér finnst um stígvélin.. held að mér finnist þau flott.. þarf aðeins að melta þetta. |
Stórt Fólk
Lítið fólk
Sorpa
Tíska & Hönnun
Glósur
kristjae@hi.is
msn: kristjana_osk@hotmail.com
Leit
Eldri færslur
október 2005
september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 apríl 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 október 2003 júlí 2003 desember 2002 ágúst 2002
Nýlegar færslur
|