31 maí, 2004

Nostalgiu kvöldið mikla

Á laugardaginn var rosa geim. Við byrjuðum á að fara út að borða, við vorum 20 saman, ég, Braginn minn og stelpurnar, meirasegja hún Klittín mín var mætt frá London, og 11 manns sem voru nýlent eftir að hafa skíðað yfir Grænlandsjökul. Þetta voru nú mest útlendingar, félagar vinar okkar frá NY. Síðan var farið á Mohito og á Prikið og skemmtum við okkur rosalega vel. Þegar Prikinu lokaði var hangið í bænum í nostalgíu gír í smá stund. Furðuleg stemming sem myndast þegar allt lokar svona snemma. Allt fyllist af blindfullu fólki sem rífst og slæst eins og það fái ís í brauðformi fyrir, svo eru enn fleiri sem horfa bara á og leita að eftirpartíi. Eníveis við stungum svo af í eitt slíkt bara ég, Bragi, Kristín, Hans og félagi hans. Það er ljótt að stinga af, I know, en enginn vildi bjóða svona mörgum í partý til sín.

Í þynnkunni fór ég í sund og við grilluðum. Sumarið er alveg greinilega skollið á, ekki spurning ;)

Kristjana skrifaði 09:43 FH | 122 ummæli

28 maí, 2004

Komin heim

Ég kom heim í gær, það var rosa gaman í Hollandi. Ég er aðallega búin að vera að slappa af í sólinni með familíunni og versla og drekka rauðvín ;) Það var rosa gott að koma heim til Braga míns samt. Ég saknaði hans soldið mikið....

Ég tók náttúrulega fullt af myndum eins og venjulega ;/ hér eru þær....



Kristjana skrifaði 04:17 EH | 116 ummæli

23 maí, 2004

Afmælistöffari !!!!

Í dag á sætasti strákur í heimi, sem ég elska svooo mikið afmæli. Ég er í Hollandi án hans og sakna hans mikið mikið. Til hamingju með daginn Bragi sætasti !!!!

Kristjana skrifaði 08:03 EH | 39 ummæli

22 maí, 2004

Six Flags

Í gær fórum við til Í Rijksmuseum að skoða gömul listaverk, rosalega flott, síðan fórum við á Waterlooplein, sem er markaður, og versluðum. Rétt við torgið er uppáhalds notuðu-fata búðin mín, Episode !! Svo gaman að versla, keypti mér sólgleraugu, ýkt flotta silfur eyrnalokka og retro puma peysu. Gaman gaman. Í dag fórum við síðan í uppáhaldið mitt SIX FLAGS og fórum oft í marga rússibana. Það var geðveikt gaman.

Ég og Kristján í Six Flags, Önnu tókst ekki alveg að komast inná myndina:

KristjanaOgKristjan 027.jpg

Hér er nú samt mynd af henni skvísunni, hér er líka kisi :)

AnnaOgKisi.jpg

Hér er ég svo líka að gefa honum af mínum sleikjó...

KristjanaOgKisi.jpg.jpg

Síðan strax eftir að þessi mynd var tekin gerðist soldið ýkt fyndið :) :) :)

Kristjana skrifaði 08:30 EH | 134 ummæli

20 maí, 2004

Lífið í Hollandi

Í Hollandi er mikil sól og gott veður, núna er 20° og ég er búin að vera úti í allan dag. Er meirasegja hætt að vera alveg hvítari en hvítt. Í gær fórum við að versla. Kristján segir að við höfum gert met í að vera lengi inni í sömu búðinni, ég held ég hafi mátað allt sem fæst í H&M og endaði með að kaupa 6 hluti þar :) Hamingja !!! Ég er samt bara rétt að byrja í innkaupaferðinni minni sko ;) Í gærkvöldi fórum við Kristján út í bjór með Hollendingunum, þeir drekka svo mikinn bjór nebbla sko, hér er brósi sko hamingjusamur með vinum sínum....

HappyKristjan.JPG

Herra Niels, hann á heima í herberginu hjá Önnu á veturna en á sumrin býr hann í stórri girðingu í garðinum... Hann er sko algjör dúlli, hann heldur að hann sé kisa, því hann leikur sér alltaf við kisur...

HerraNiels.JPG


Ég held að við horfum bara á DVD í kvöld og borðum Cheetos nammi namm... uppáhalds snakkið mitt og það fæst ekki einusinni á Íslandi :( en svona er lífið...

Kristjana skrifaði 05:29 EH | 49 ummæli

17 maí, 2004

Quentin Tarantino gerir BOND mynd ??

Úff hvað mig hlakkar til að sjá Casino Royale í útfærslu Tarantino. Þ.e. ef mbl hefur rétt fyrir sér. Eins og Tarantino er sniðugur efast ég samt um að hann nái að slá originalnum út...

En annars lýsi ég hér með eftir þeim sem fékk Casino Royale myndirnar okkar lánaðar (.... já við erum búin að týna tveimur eintökum ;/ )

Annars væri gaman að sjá alvöru ***GLAM GLAM*** Bond mynd eins og þær voru fyrst með glamúr drottningum eins og Ursulu Anders...


Kristjana skrifaði 04:01 EH | 38 ummæli

16 maí, 2004

E u r o t r a s h

Í gær héldum við partý í tilefni Eurotrash keppninnar, við fengum lánaðan myndvarpa og hljóðkerfi og skemmtum okkur alveg rosalega vel, við héldum með Ruslönu og það var mikil hamingja hér þegar úrslitin urðu ljós. Ég var búin að fá loforð frá mörgum um dans ef hún ynni en svo vildi enginn dansa nema Stebbi, ég og hann erum nebbla disco dancin buddies!!! Eftir skemmtilega og einkar ósmekklega keppni og partí röltum við nokkur saman niðrí bæ, við fórum á Pravda og síðan á Sólon (Uppáhaldsstaðinn minn eins og allir vita!!!) Ég tók nú ekki eins margar myndir og ég var búin að lofa....
Smelltu til að lesa áfram og skoða myndirnar....

Continue reading "E u r o t r a s h"
Kristjana skrifaði 09:43 EH | 54 ummæli

14 maí, 2004

Próf lok !!!

Rétt tæpur sólarhringur í að ég verði búin í prófum !!! Þá verður sko gaman, ég lofa skemmtilegum myndum af djamminu á morgun !!! Svo fer ég út á þriðjudaginn þar er spáð 21°c vúhú ;)

Kristjana skrifaði 07:09 EH | 0 ummæli

11 maí, 2004

Gucci S T R O K L E Ð U R

Sumt fólk er bara ruglað... Þetta strokleður frá Gucci kostar 130 $ og selst mjög grimmt, aðallega í Japan!

Í öðrum fréttum: leiðinda tölfræðin búin.... Bara skemmtilegt eftir !! Markaðsfræði II og Aðferðafræði... Vei vei vei og svo er komið sumarfrí vúhú ;)

Kristjana skrifaði 07:14 EH | 44 ummæli

Próf búin og júróvision djamm !!

Mig hlakkar til á laugardaginn, þá er sko síðasta prófið mitt og svo er júróvision auðvitað. Einusinni hataði ég júróvision, vonaði alltaf að við myndum detta út svo það kæmi ekki eitthvað fífl að ári og yrði landi og þjóð til skammar. En já núna er ég hætt að vera hipp og kúl og farin að gera grín að landi og þjóð. Reyndar finnst mér lagið okkar í ár bara það skársta í langan tíma. Mér finnst öll lögin okkar hafa verið glötuð nema þegar Páll Óskar fór og rokkaði feitt. Í fyrra vonaði ég að við myndum senda Botnleðju, ég held ég hafi kosið eins oft og mátti bæði úr mínum síma og Braga síma og hvatt alla í sem voru þarna í afmælinu hjá Dóru til að gera það sama. En neeeeiiii sósulits gellan með teiknuðu augabrúnirnar og blómið í hárinu vann... Jæja kannski eigum við bara skilið að einhver verði land og þjóð til skammar í júróvision... Gefur réttmæta mynd af tónlistarsmekk flestra Íslendinga.

Kristjana skrifaði 02:45 FH | 37 ummæli

9 maí, 2004

Pirrandi en ávanabindandi leikir

Prófaðu fyrst þennan leik:
http://www.ebaumsworld.com/crimsonroom.html

og þegar þér tekst að klára, prófaðu þá þennan:
http://www.fasco-cs.com/works/viridian/index_e.html

núna er ég í þessum:
http://www.albartus.com/motas/mystery/

AAAAARRRRRGGGGH!!!!!! Nenni ekki að læra!!!!!!

Kristjana skrifaði 10:29 EH | 45 ummæli

6 maí, 2004

Sex and the city búið

It's the end of an era....

Það eru örugglega einhverjir sem lesa þetta og finnst ekki mikið til þáttanna koma. Finnst þetta bara vera tíbískur þáttur með fjórum steríótýpum sem gera lítið annað en tala um stráka og drekka kokkteila...

En málið er ekki svo einfalt.... smelltu hér fyrir neðan til að lesa meira og sjá myndir...

Continue reading "Sex and the city búið"
Kristjana skrifaði 11:26 EH | 40 ummæli

Fullt af myndum

Núna er ég búin að setja fullt af myndum inn í myndasafnið....

Fara í myndasafn

Kristjana skrifaði 11:52 FH | 3 ummæli

5 maí, 2004

Veggskreyting loksins

Kristjana skrifaði 11:31 EH | 38 ummæli

Hangiddí hangs

Er ekki búin að læra neitt í dag, var bara hangandi, mátaði flugfreyjukjól, lagaði til, fór á quiznos með Braga, spjölluðum við Sigga Palla, fór á snyrtivörukynningu. Alveg merkilegt hvað þeim finnst við fríhafnarskvísur ljótar, við þurfum að hylja húð okkar, bera á okkur krem því við erum svo hrukkóttar og nýjasta er að við þurfum að smyrja okkur daglega með mjókkunar kremi sem gerir húðina líka stinnari. Eru þær að gefa til kynna að við séum feitar, hrukkóttar og bólugrafnar.

Eru þær að dissa okkur???

Kristjana skrifaði 01:16 FH | 0 ummæli

4 maí, 2004

Næst á dagskrá

Jæja þá er tölfræðin næst á dagskrá, reyndar er það ekki fyrr en næsta þriðjudag en mig veitir ekkert af tímanum, er nebbla búin að vera svo svakalega löt að læra hana í vetur... En eftir það fer ég í próf í markaðsfræði sem er ógeðslega skemmtilegt og svo í aðferðafræði sem er líka ýkt gaman... Þannig að mig hlakkar til að vera búin í tölfræðinni !!

ó nó.... var að fatta að ég er ekki búin að borða neitt í dag ;/ ...ég er svangur !!! Ætla að kaupa mér eitthvað að borða nammi namm

Kristjana skrifaði 03:44 EH | 33 ummæli

3 maí, 2004

Staðan

2 próf búin, 3 eftir !!

Kristjana skrifaði 06:46 EH | 41 ummæli

1 maí, 2004

Hrukkukrem

Úff þegar ég kom í vinnunna í gær var gjöf til mín!!! Jibbí jei!!! ég fékk flott meik frá Lancome og krem en málið var að þetta var ekki bara krem heldur hrukkukrem fyrir augnsvæðið... Ég fór náttúrulega á heimasíðuna að skoða þetta.... hélt að þetta væri ekkert fyrir mig, kannski að ég ætti að gefa mömmu þetta en nei nei, þar stendur að maður eigi að byrja að nota þetta þegar maður er 20-og-eitthvað !! Ok ég ætla að nota þetta....

Kristjana skrifaði 10:47 FH | 44 ummæli