30 júní, 2004

Bíð spennt eftir helginni

Það er fríhelgi framundan hjá mér... Það eru mikil tíðindi vegna þess að ég vinn 3 helgar í mánuði ;) Ég ætla barasta að vera í bænum, reyna að læra eitthvað á laugardaginn, nú fer nebbla að styttast í prófin. Annars er ég ýkt spennt að fá systkini mín heim 7. júlí. Þá verður gaman gaman.

Annars er hann Braginn minn búinn að vera lasinn og ég ætla að drífa mig heim að hjúkra honum og gefa honum að borða :) Kannski finna einhverja mynd tilsað horfa á og eitthvað svoleiðis sniðugt.....

Kristjana skrifaði 06:13 EH | 114 ummæli

27 júní, 2004

Here comes the bride MUSICAL panty...

Þessar brækur spila tónlist ....

Eníveis....ég kíkti út með stelpunum í gær, Helgu og Hönnu. Kíktum á Prikið og Pravda og meirasegja á Ara í Ögri. Nokkuð nett kvöld bara... samt ekkert til að tala um. Helga málaði okkur allar þannig að við vorum allar ennþá sætari en venjulega. Hehe ;)

Kristjana skrifaði 11:09 EH | 2 ummæli

26 júní, 2004

Ferðalag berðalag

Ég og Bragi fórum í ferðalag, við fórum í sumarbústað í Önundarfirðinum (sem er rétt hjá Flateyri og Ísafirði ef lesandi er jafn slappur og ég í landafr.) Það var barasta gaman, við keyrðum þangað á sunnudagskvöldið, þá voru sumarsólstöður og rosalega fallegt og gott veður. Þessi mynd var reyndar tekin lengst uppá heiði og eins og sést var ekkert svakalega hlýtt þar.

035.jpg

En annars var rosalega fallegt og gott....

043.jpg

Hér er sæti brumminn...

047.jpg

Fyrsti dagurinn okkar fór nú aðallega í að sofa og lesa... Ég las heila bók, Óbærilegur Léttleiki Tilverunnar sem er alveg í frásögur færandi þar sem slíkt gerist mjög sjaldan, þá helst um jólin eða í öðrum fríum.

Eníveis við fórum að skoða margt og mikið á meðan við vorum þarna... Við fórum í Skrúð sem er geðveikur garður með mesta fjölda fiðrilda sem ég hef á ævi minni séð og allskonar blómum sem ég hef aldrei séð á Íslandi...

jonsmessa 022.jpg

Þaðan keyrðum við í rosalega fallegan dal sem er nú að mestu leyti kominn í eyði, þaðan sáum við alla leið til Grænlands, það var svo heiðskýrt. Það sést reyndar ekki á þessari mynd en hún er af gamalli verbúð sem var vandlega gætt af svona 200 kríum.

jonsmessa 034.jpg

Þar voru húsarústir sem við ætluðum að fara að taka myndir af en þá komu einhverjir brjálæðir hestar hlaupandi að okkur og við þorðum eiginlega ekki nær, við höldum að þeir hafi verið ótamdir og þeir sjá örugglega aldrei fólk nema einbúa kerlinguna sem býr þarna í dalnum.... Þannig að við þurftum að sætta okkur við að taka mynd svona í fjarlægð

jonsmessa 047.jpg


Á miðvikudagskvöldið löbbuðum við í annan dal, þangað liggur enginn vegur, þessi bíll dó þar sem vegurinn endar ....

Mosdalur 029.jpg

Sá dalur er alveg kominn í eyði, þar voru torfbæjar rústir, gönguleiðin þangað er meðfram fjörunni sem mér finnst æði það eru nebbla fullt af selum þar. Ég reyndi oft að ná mynd af einum en þeir koma aldrei nógu nálægt ;(

Þessi mynd er tekin á gönguleiðinni þangað:

Mosdalur 027.jpg

Ég veit ekki hvort fólk nennir að skoða fleiri myndir af þessu en þær koma kannski fljótlega inná netið, þegar við erum búin að fara yfir þær, það eru nebbla a.m.k. 3 myndir alltaf af sama hlutnum....

Kristjana skrifaði 10:26 FH | 141 ummæli

20 júní, 2004

Éttu skít Cindy Lauper !!!

Til hvers að vera eighties stjarna ef það er samt skitið á mann???

LESA HÉR !!

Kristjana skrifaði 10:07 FH | 4 ummæli

19 júní, 2004

allskonar röfl

Núna erum við Braginn minn búin að kaupa myndaramma og búin að setja upp myndir í stofunni okkar, Það eru 9 ljósmyndir, 5 eftir Braga, 1 eftir mig og 3 eftir Stebba ljósmyndasnilla síðan settum við upp myndir sem bróðir minn málaði handa mér í fyrra. Við erum líka búin að gera ýmislegt fínt, mála, setja upp ljós og svoleiðis. Gaman gaman.

Núna er Kristín á landinu og við erum að fara að djamma í kvöld í tilefni þess að hún átti afmæli á miðvikudaginn. Við sögðum henni að velja hvað hún vildi í matinn og skvísan valdi hangikjöt og uppstúf þannig að ég á þjóðlegt kvöld í vændum. Vonandi nenni ég að taka margar skemmtilegar myndir.

Á morgun ætlum við Bragi að keyra vestur og vera í sumarbústaðnum þar í nokkra daga, enda ég að fara í 4 daga frí. jibbí jei ;) Við vorum að fá fullt af útivistardóti svo við höfum enga afsökun fyrir að labba ekki upp á fullt af fjöllum og skoða okkur um, Bragi á ennþá eftir að sýna mér eitthvað vatn þarna uppá fjöllum sem hann talar stundum um.

Talandi um það þá var búið að ákveða að labba upp Esjuna í dag.... Er ekki alveg að nenna, sjáum til hvað hinir gera, ekki ætla ég að vera manneskjan sem guggnar ;)

Kristjana skrifaði 11:02 FH | 1 ummæli

14 júní, 2004

Langar í ...

Langar í þessa mynd... búin að leita út um allt á netinu af stærri mynd sem ég get prentað en finn enga. Myndin er eftir Marc Atlan.

Kristjana skrifaði 12:34 FH | 47 ummæli

13 júní, 2004

Gulir demantar.

Ég og Birgitta fórum í veislu til Þóru, gömlu Versló vinkonu, í gær. Hún var að útskrifast úr HR. Þar var rosa gaman og vel veitt. Einum of kannski því ég týndi símanum mínum og eyrnalokk. Kvöldið var því alveg ónýtt í huga mínum en þegar ég vaknaði í morgun komst ég að því að Birgitta hafði óvart tekið símann minn og eyralokkurinn fannst líka. En ég held að allt starfsfólkið á Prikinu og á Pravda hafi leitað fyrir mig að rosalega verðmætum gulum demantseyrnalokkum ;) Þess má geta að eyrnalokkarnir eru ekki demants. Þá væru þeir frekar mikið dýrir, enda frekar stórir. (sjá mynd)

hafrafjall028_litil.jpg

Á morgun er svo stefnt á að mála eitthvað hérna heima, kannski eldhúsið og ganginn. Það fer bráðum að verða rosalega fínt hérna ;) Maður nennir aldrei að drífa sig af stað að gera það sem þarf að gera en á morgun verður þetta gert ekkert múður með það. Núna er ég búin að tilkynna það og maður verður að standa við það sem maður segir á netinu ;)

Kristjana skrifaði 10:38 EH | 1 ummæli

11 júní, 2004

Sumarvikan

Maður nennir ekkert að hanga í tölvunni þegar það er komið sumar, efast um að ég nenni að skrifa svo mikið í sumar...annars er ég búin að vera að vinna alla vikuna og reyna að gera eitthvað skemmtilegt í góða veðrinu.

Á miðvikudaginn fórum við í sushi hjá Sigga Palla og Dóru til að halda uppá að KommaStrik.com er komin upp. Sushi er gott ;)

Á fimmtudaginn fórum við svo í smá myndatökulabbitúr í heiðmörk.

Í gær fórum við Bragi í pikk-nikk með flottu körfuna og græjurnar sem hann fékk í ammlisgjöf frá Sigga og Dóru í fyrra. Við fórum í einhverja sniðuga laut rétt hjá Kaldárseli og sofnuðum þar í sólinni, þangað til eitthvað hestapakk kom að trufla okkur :( Það var samt alltíllagi, við fórum bara bíltúr í gegnum heiðmörkina á Þingvelli og tjilluðum þar og tókum myndir.

Kristjana skrifaði 07:41 EH | 125 ummæli

5 júní, 2004

Með og á móti

Var að lesa á einhverju bloggi þar sem einhver var með einhvernveginn svona lista... frekar sniðugt þar sem ég nenni ekki alltaf að vera að tala um eitthvað svona alvarlegt..... Allaveganna hér er minn:

Kristjana skrifaði 10:20 FH | 2 ummæli

4 júní, 2004

Bannað að reykja ???

Pæliði í því að kannski verður hægt að fara á kaffihús án þess að fara í sturtu eftirá !! Í haust verður nebbla lagt fram frumvarp um reykingabann á veitingastöðum. Ég vona að þetta komist í gegn ... Lesa meira á mbl.is

Kristjana skrifaði 08:19 EH | 132 ummæli

Hafrafjall ???

Ég, Bragi og Birgitta fórum í smá gönguferð uppá fjall. Nokkuð sniðugt. Það var rosa gott veður og við Birgitta alveg komnar með nóg af því að sitja á Austurvelli ;) Við keyrðum að Hafravatni og löbbuðum upp smá hól þar sem við vitum ekki hvað heitir (kannski Hafrafjall???) og kíktum á útsýnið og tókum nokkrar myndir.

Þessa mynd tók ég af útsýninu yfir "sveitina".

Bragi tók þessa mynd en gott útsýni var yfir borgina, kannski sjáið þið Perluna og Hallgrímskirkju

Hér eru fjallagarparnir að spjalli

Á leiðinni niður sáum við þetta dúllulega hreiður sem lítill hræddur fugl átti, Bragi náði að smella mynd.

Hér eru ég og Birgitta að rölta niður, mér finnst litirnir koma flott út á þessari mynd.

Þegar við komum aftur í bæinn sáum við þennan svaka flotta bíl og ég bara varð að taka mynd af honum.

Þegar við komum heim grilluðum við lambalærisneiðar og drukkum rautt með ;)

Í stuttu máli með engum myndum: góður dagur

Kristjana skrifaði 12:55 FH | 37 ummæli

3 júní, 2004