31 júlí, 2004

Every secretary's nightmare

Ég er alls ekki svona verslunarmannahelga týpa. Nenni ekki að vera blaut, svöng og þreytt inní sveittu tjaldi, svo er líka erfitt að finna almennilegan mat á útihátíðum. Ég er að vinna alla helgina en kíkti nú þrátt fyrir það út á lífið í gær. Helga og Heiða komu til mín og svo fórum við á Prikið, þar sá ég sætasta barþjón í heimi og höstlaði hann. Ég mætti síðan í vinnuna í morgun og seldi grey fólki brennivín, það veit ekki hvað það er að láta hafa sig útí.

Ég er nú samt búin að vera dugleg að læra í dag þrátt fyrir þynnku. Baldur kíkti til mín og við gerðum tvö verkefni og nú er ég komin aftur í vinnuna og ætti að vera að læra á meðan ég bíð eftir vélinni en er hangandi á netinu, rakst á skemmtilegt próf á síðunni hjá Ásdísi og fékk þessa niðurstöðu.

Sexy Secretary
You are every secretary's nightmare


Which Ultimate Beautiful Woman are You?
brought to you by Quizilla

Kristjana skrifaði 08:07 EH | 134 ummæli

25 júlí, 2004

Heimsókn til Ömmu

Í dag fórum við systinin í smá bíltúr að heimsækja ömmu og manninn hennar, fyrir þá sem ekki vita eru þau rétt austan við Kirkjubæjarklausur. Þau tóku rosa vel á móti okkur, við fengum rosa gott að borða, lambalæri með öllu tilheyrandi, ís með jarðaberjum og pönnukökur. Við fórum með þeim á Núpsstað við Lómagnúp og skoðuðum þar um og tókum myndir, Kiddi spilaði á orgel fyrir okkur í eldgamalli lítilli kirkju sem er síðan 1600-og-eitthvað.

SKOÐA MYNDIR

Kristjana skrifaði 11:28 EH | 126 ummæli

23 júlí, 2004

Nýtt ;)

Ég er búin að bæta við 2 linkum. Annarsvegar á hana Hönnu mega skutlu sem er nýbyrjuð að blogga og hinsvegar á lítin polla sem heitir Alexander, en Henný mamma hans er dugleg að skrifa á síðuna hans... Henný var með mér í Versló sko.

Kristjana skrifaði 02:01 EH | 0 ummæli

Hvað er að frétta af Krissu litlu???

Í gærkvöldi kíkti ég á nýju Shrek myndina með systkinum mínum og Sigrúnu. Myndin er fín. Mæli alveg með henni. Ég fór líka á Austurvöll að tjilla, í göngutúr og sund og í grill til tengdó. Allt gert á milli þess að ég afgreiddi grænlandsflug.

Í kvöld var svo algjör bíó stemming heima hjá okkur, ég, Bragi, Kristján, Stebbi og Birgitta horfðum á Butterfly Effect. Síðan kom Heiða og við kíktum á Vegamót í einn bjór ;)

Nú þarf ég að fara að lúlla, nóg að gerast í vinnunni á morgun.

Kristjana skrifaði 01:44 FH | 133 ummæli

22 júlí, 2004

Röfl tekið tilbaka...

Röfl #1
Bragi minn er ekki lengur mikið lasinn ;) Jibbí.

Röfl #2
Ég er farin að læra fyrir prófin, byrjaði í gær ;) Gott mál

Röfl #3
Ég held að ég sé alveg í góðum málum með vinnu í vetur og þarf ekki að hafa áhyggjur af því lengur ;)

Hér eru top 10 trend haustsins skv. Style.com - vogue á netinu.....

Kristjana skrifaði 11:38 FH | 1 ummæli

20 júlí, 2004

Mesta röfl og væl í heimi

Röfl #1:
Þetta sumar er að verða að mesta leiðinda vinnu-sumari sem ég man eftir. Ég er endalaust að vinna og tek alla aukavinnu sem ég mögulega get. Þannig að nú á ég ekki einusinni frí þriðju hvora helgi. Braginn minn er veikur með lugnabólgu þannig að ég reyni að vera sem mest með honum þegar ég er ekki að vinna. Hjúkra honum og vera góð. Stebbi er búinn að koma nokkrum sinnum með úrval mynda til að lána honum og er búinn að vera mikið góður. Vonandi fer honum að batna

Röfl #2
Síðan er ég að fara í tvö próf í Ágúst og ég er varla byrjuð að læra, maður nennir því enganveginn þegar svona mikið er að gera en ég er sem betur fer búin að redda mér fríi í nokkra daga fyrir þau.

Röfl #3
Síðan er annað vesen... ég er ekki enn búin að fá að vita hvort ég fæ nógu mikla vinnu í vetur eða hvort ég þarf að finna aðra líka og það er frekar óþægilegt.

Ef þú ert enn að lesa læt ég þig vita að hér endar röflið !!!

Kristjana skrifaði 11:32 EH | 139 ummæli

17 júlí, 2004

Oooo þarf bráðum að fara til tannlæknis :(

post-6-1087421135.jpg post-6-1087421173.jpg post-6-1087421211.jpg


Kristjana skrifaði 07:51 EH | 128 ummæli

14 júlí, 2004

Nýjasta tíska

Í byrjun Júlí voru herralínurnar fyrir næsta vor/sumar kynntar í París og Mílanó. Ekki leiðinlegt að skoða, sumt var flott og fullt af ógeðslega ljótu.

Þessi föt finnst mér flott, þetta er frá D&G

DG22.jpgDGWillChalker.jpg

Dolce & Gabbana línan er miklu formlegri, fyrri myndin er af Will Chalker sem er að meika það núna, er í öllum sýningunum (sjá mynd fyrir ofan líka). Æðislegt tígrisdýr. Mér fannst líka gaman að sjá tvíhneppt jakkaföt.

WillMedTigris.jpgTvihneppt.jpg

Gucci línan fannst mér vera viðurstyggð. Ógeðslega væmnar og ljótar mussur, svipað og var í tísku fyrir 10 árum, ég gæti ælt. (btw þetta eru strákar, báðir!!)

Gucci4Ljott.jpgGucci6Ljott.jpg

En annað sem mér fannst ógeð var hversu horaðir gaurarnir voru hjá Calvin Klein. Þeir líta út eins og sjúklingar greyin...

CalvinKleinHor2.jpgCalvinKleinHor.jpg

Það eru alltaf stelpur með þeim líka... Christina Aguilera var í DSquared sýningunni, sem er rosalega heitt merki núna. Caroline Winberg súpermódel var hjá Versace.

christinaAguilera.jpgCarolineWinberg.jpg

En annað með Versace/versus línuna að mér fannst early nineties áhrifin vera rosalega mikil þar... litaðar gallabuxur, sylgjubelti og óhnepptar skyrtur yfir bol. Hin myndin er af jakkafötum sem mér finnst geðveikt flott.

VersusEarlyNineties.jpgVersusJakkafot.jpg


Kristjana skrifaði 07:24 EH | 144 ummæli

12 júlí, 2004

Reykjavík vill vera memm

Reykjavík er ömurleg í samanburði við höfuðborgir þeirra landa sem við miðum okkur helst við. Þetta virðist skv. ýtarlegri rannsókn minni vera skoðun yfirvaldsins í borginni. Við erum ekki hálfdrættingar í mengunarsköpun, léleg í myndun umferðarteppa og morðtíðnin slök m.v. hina frægu höfðatölu. Forráðamenn eru að reyna að breyta þessu, þeir þola ekki að vera með minnst af öllu, þola ekki að vera svona aumir smáborgarar. Nú er lausn í sjónmáli. Þeir ætla að byggja hraðbraut þar sem útlendingarnir sjá hana örugglega, í miðbænum, og ætla þeir að bjóða kóngafólki gamla heimsins að koma að sjá. Nú verðum við íslendingar að taka okkur saman í andlitinu og fara niður í Glitnir og SP-fjármögnun og redda bílum á vegina. Þannig sláum við ÞRJÁR flugur í einu höggi, meiri umferðarteppur, meiri mengun og hærri morðtíðni þegar menn fara að drukkna í bílaskuldum, leggjast í þunglyndi og keyra á óvini sína.

Samstarfshópur sem borgarstjórn hefur sett saman leitar nú lausnar á næturleysinu sem háir borgarbúum yfir sumartímann. Skýrslu en vænst í vikunni.

Kristjana skrifaði 02:49 FH | 1 ummæli

8 júlí, 2004

Leti

æi ég nenni ekki að skrifa neitt þessa dagana....

Hér er hallærislegur hlutur fyrir ykkur að horfa á....

http://www.giftsprings.com/Merchant2/merchant.mv?Screen=PROD&Product_Code=31341&Category_Code=G

Kristjana skrifaði 02:15 EH | 2 ummæli





Stórt Fólk