31 ágúst, 2004

Þrjár einingar í viðbót komnar í höfn.

Jibbí !! Ég fékk 8 í markaðsfræði og ég hélt mér hefði gengið frekar illa í prófinu. Ekki nóg með það heldur var Kiddanna litla hæst af öllum sem tóku prófið. Jibbí jei, jibbí jibbí jei.

Nú er bara að bíða og vona að ég hafi fengið gott út úr reikningshald prófinu.

Kristjana skrifaði 06:07 EH | 128 ummæli

29 ágúst, 2004

Allt að gerast...

Nú er ég komin með stundatöflu fyrir önnina, þetta lítur ágætlega út, verð ekkert í skólanum á föstudögum og ekki Bragi minn heldur sem er gott. Ég þarf reyndar að mæta í skólann klukkan 8:15 á miðvikudögum og fimmtudögum. Það verður eitthvað vesen að vakna svo snemma tvisvar í viku.. Ég fer í Markaðsfræði III og IV, Fjármál I, Stærðfræði A og Viðskiptaensku. Þetta lítur allt rosa vel út og ég bíð spennt eftir að byrja í skólanum eftir viku... Fyrst förum við samt út til Danmerkur og verðum þar í nokkra daga...

Í gær fór ég á James Brown tónleikana og skemmti mér rosalega vel, síðan fór ég heim til Jóhönnu og Kalla og við Birgitta kíktum svo á Prikið og á Rex.

Kristjana skrifaði 06:33 EH | 0 ummæli

28 ágúst, 2004

28. ágúst 1968

Í gær var ég heima að taka til, maðurinn minn var að pússa og lakka tekk snyrtiborð sem hann keypti handa mér, speglarnir eru brotnir en hann ætlar að kaupa nýja spegla í það og skrúfa þá á. Við keyptum líka nýjar hillur, það eru svona Hansa hillur eins og eru svo mikið í tísku einmitt núna, við festum þær á vegginn og í dag raðaði ég bókunum okkar í þær. Á morgun er ég að fara á tónleika með James Brown, hann er rosalega vinsæll ungur maður sem flytur framúrstefnulega tónlist og ber skemmtilega hárgreiðslu.

Kristjana skrifaði 01:05 FH | 5 ummæli

22 ágúst, 2004

Á menningarnótt er ekki ljótt...

Á menningarnótt kíkti ég til Birgittu og hitti þar Jóhönnu, Kalla og Sögu... gamla versló félaga... Við fórum síðan að horfa á flugeldana, svo á mójito, á apótekið, á hressó (I know... glatað... don't ask) og á Vegamót... Ég skemmti mér rosavel, sá fullt af fólki sem ég hef ekki séð í langan og enn lengri tíma. eníveis... það heppnuðust bara svona 5 myndir af öllu kvöldinu (og ég er á helming þeirra)... eftir 2 glös eru ljósmynda hæfileikar mínir ekki betri en þetta, frekar sorglegt....

menning1.jpg

Kristjana skrifaði 11:33 FH | 129 ummæli

20 ágúst, 2004

Amazing cream

TÉKKIÐI Á ÞESSU

Kristjana skrifaði 07:56 EH | 41 ummæli

12 ágúst, 2004

Rónar í Reykjavík

ronar1.jpg

ronar2.jpg

ronar3.jpg

ronar4.jpg

Kristjana skrifaði 10:35 EH | 128 ummæli

8 ágúst, 2004

Pöbbarölt í tíma og ótíma...

Já þá er aftur kominn sunnudagur, undanfarin vika er aðallega búin að fara í að læra, þ.e. þriðjudagur, miðvikud. og fimmtud, ég kíkti nú samt aðeins Vegamót á fimmtudagskvöldið með Birgittu og Heiðu. Við fengum okkur hvítvín og spjölluðum. Helga og Gummi kíktu svo líka á okkur þangað. Í gær fóru ég og Bragi í kringluna og síðan hitti ég Dóru frænku mína í gærkvöldi. Eftir að hafa verið hér heima í rólegheitunum með henni komu stelpurnar og við fórum svo öll saman niðrí bæ. Braginn minn var að vinna og við kíktum auðvitað á Prikið til hans en líka á Vegamot og Hverfis. Mér finnst gaman á Vegamótum og Prikinu en leiðinlegt á Hverfisbarnum... Núna er ég að vinna alla vikuna og er alveg að farast úr stressi yfir því að vera ekki lærandi en ég reyni að smella mér í gírinn á milli fluga. Ég er aftur komin í vaktafrí um næstu helgi og þá verður bara lært alla helgina, ég er nebbla alveg að fara að massa þessi próf sko ;)

Kristjana skrifaði 03:43 EH | 1 ummæli

2 ágúst, 2004

Cosmo - Cheaper than Jugs and smells like chicks

Ráðleggingar úr ágústhefti bandaríska Cosmopolitan:

Ef gaur lætur þig bíða eftir sér á veitingahúsi í hálftíma:

"Be sure to call your new friend, the bartender, by his name as you say good-bye, and thank him for the great mojito recipe."


Hann er ofurölvi og heldur áfram í vodka skotunum:

"Tell him about your plans to make brunch of waffles and whipped cream...you wouldn't want a hangover to ruin the fun"


Forleikurinn endist bara 60 sekúndur:

Pull out a silk scarf, tie yourself to the bed, and tell him "You have 60 minutes to do everything but that. Starting now."

Ég veit ekki hvernig þeir fara að því þarna hjá Cosmo að binda sig sjálfar en það er allaveganna mikið á sig lagt til að gera strákunum til geðs. Spurning hvort að Jugs sé með svipaðar ráðleggingar handa karlmönnum.

Kristjana skrifaði 10:12 FH | 1 ummæli





Stórt Fólk