|
|
27 september, 2004HelginHelgin er liðin og ég er búin að hitta Kristín Báru og djamma með henni. Við vorum heima hjá Írisi og þær drukku Jack Daniels í kók (don't ask) ég hafði ekki beint lyst á því. Við fórum síðan á Prikið og knúsuðum Braga og svoleiðis. Við þurftum að fara snemma heim... ég vegna vinnu en Kristín vegna þess að hún var að fara til Túnis um morguninn. Ef hún væri ekki svona mikil dúlla myndi maður alveg hata hana hehe... alltaf að ferðast út um allan heim. Á laugardaginn komu Birgitta, Jóhanna og Helga til mín. Við drukkum alveg ógeðslega mikið af absolut mandrin.. sem er btw alveg snilldar drykkur. Við kíktum svo niðrí bæ... fórum á Rex og á Vegamót og síðan á Prikið í smá stund. 24 september, 2004Endurbætur...Við Bragi erum búin að standa í stórræðum undanfarna daga... já við erum búin að mála eldhúsið okkar... núna er það grátt... nú er bara að drífa sig með ljótu grænu skápana í sprautun og þá verður eldhúsið fínt og flott... Annars kíkti ég í afmæli hjá Júlíu sætu áðan og borðaði á mig gat. Hún var einsárs skvísan litla. Nú er ég bara spennt fyrir helginni. Kristín Bára vinkona er mætt frá London og ég er að fara að hitta hana á morgun. Síðan er stelpudjamm á laugardaginn. Svo á Fríða frænka líka afmæli í dag... Til hamingju Fríða og Júlía... ![]() ![]() 21 september, 2004Afmælis fólkHún HANNA KRISTÍN MEGA SKUTLA á afmæli í dag!!! TIL HAMINGJU SÆTA :) ![]() Já og enginn að taka eftir ljóta appelsínugula drykknum mínum og sorry Stebbi ég stal myndinni af vefnum þínum ;) Kristjana skrifaði 01:00 EH
| 111 ummæli
18 september, 2004Bla....bla..blabla bla...bla bla :)Síðan ég lét heyra í mér síðast hefur ýmislegt drifið á daga mína... Á fimmtudagskvöldið um klukkan 7 stóð ég fyrir utan þjóðarbókhlöðuna í miðjum mótmælendahóp þegar Heiða vinkona hringdi og bauð mér tvo miða á sýningu á Hárinu sem átti að hefjast klukkan 8. Bragi þurfti að fara á fund svo ég dreif mig auðvitað að hringja í einhverjar stelpur og bjóða með en hún Hanna Kristín var sú fyrsta til að taka boði mínu svo ég sótti hana og við brunuðum spenntar á showið. Sýningin var nú bara nokkuð nett og ég var ekkert smá hissa þegar allir fóru úr fötunum uppá sviði. Ég bjóst nú ekki við þessu hehe. Föstudagurinn hófst á því að Ása vinkona hringdi í mig og bauð mér í lunch. Ég kíkti með henni og Konstantin gæjanum hennar á Kaffi Kúltur. Síðan fórum við uppí Hallgrímskirkjuturn og í Perluna. Núna er kominn Laugardagur og ég var að koma heim úr vinnunni, kvöldið lofar góðu við erum að fara í ammli til Hönnu sætu. Og á morgun verður tekinn "the golden circle" það er svo gaman, sýna Konstantin smá af fallega landinu okkar. 15 september, 2004Gömul konaÉg fór í Melabúðina í dag og ég sá gamla konu í alveg eins jakka og ég á.... Hún var vel tilhöfð og hafði greinilega farið í lagningu og fínerí... Hún var geðveikt mikil gella. Venjulega ÞOLI ÉG EKKI að sjá fólk í alveg eins fötum og ég á en þessi gamla gella var bara mesta dúlla í heimi. 12 september, 2004ÖppdeitÞá er helgin að verða búin og ég er spennt að byrja nýja skólaviku. Ég er loksins orðin nokkurnveginn hress og ætla í bíó með honum Braga mínum í kvöld.. Erum að pæla í að fara á Stepford wives. Við vorum að fá það á hreint að við förum til Hollands næstu mánaðamót, Lilja systir pabba á afmæli og við ætlum að fara að halda uppá það með henni... og auðvitað skemmta okkur líka... Jibbí jei.. það er svo gott að hafa eitthvað skemmtilegt að hlakka til ;) 9 september, 2004Frú Hálsbólga mætt á svæðiðFrú Hálsbólga er mætt á svæðið, hún kom bara skyndilega í gærkvöldi, algjörlega óboðin og rosalega uppáþrengjandi. Ég þoli hana ekki !! Svo ég er bara búin að hanga á netinu í allan dag á milli þess sem ég hef sofið og lesið DaVinci lykilinn. Það er btw rosa góð bók - sem ég meirasegja kláraði en það samsvarar bestu meðmælum hjá mér - ég nenni nebbla aldrei að klára skáldsögur. Ekki nóg með það heldur byrjaði ég á eintaki sem tengdó eiga útí Danmörku og svo fór ég til Helgu og Gumma og fékk þeirra lánaða um leið og ég kom heim... Vá hvað ég vona að ég verði laus við þetta um helgina... langar svoooo að djamma á laugardaginn... í nýju fötunum og svona, get verið mega-pæja ;) Kristjana skrifaði 12:34 FH
| 133 ummæli
7 september, 20046 september, 2004Ferðasaga frá Kongens KöbenhavnÍ gærkvöldi komum við heim frá Köben. Við mættum þarna í hádeginu á miðvikudaginn, þá fór ég með Siggu og Sigrúnu í Fields sem er stórt moll sem er bara með fata og snyrtivörubúðum. Algjör draumur. Fimmtudagurinn fór í meiri verslunarleiðangur en þá fórum við á Strikið og þar í kring, þar keypti Bragi sér jakka og skó og Manchester United bol sem hann er endalaust ánægður með. Við fórum síðan um kvöldið með Sólveigu á kaffihús og á einhverja bari meðal annars á einn sem var með sandi á gólfinu og svo fengum við okkur að borða á Pasta Basta sem er æðislegur staður, beint fyrir ofan sand barinn, ég mæli með honum ef einhver á leið um þarna. Föstudagurinn fór í að túristast, við fórum í Christianíu, fengum okkur að borða á Grábræðratorgi og við Nyhavn og enduðum kvöldið á hinum sögufræga Hvids Vinstue. Það var þó verslað pínku pons. Sigga var nebbla svo góð og vildi endilega gefa mér veski og við fórum í smá leiðangur að leita af svoleiðis sem fannst við búð þarna á Strikinu. Það var rosa gott veður allan tímann meðan við vorum þarna, á laugardeginum fórum við Bragi niðrá Islandsbrygge og láum í sólbaði í grasinu þar og drukkum bjór, síðan röltum við niðrí bæ og horfðum á fótboltaleik á írskum bar. Um kvöldið fórum við með Sólveigu á stað sem heitir Park, það er rosa flottur staður í arabískum stíl með vatnspípur og ávaxtatóbakslykt um allt. Við vorum ekki alveg með lestirnar á hreinu þannig að við þurftum að labba soldið langt til að komast tilbaka en það var ágætt, við sáum þá Österbro og Norrebro í leiðinni. Sunnudagurinn var bara afslöppun, sátum á útikaffihúsi þarna í nágrenninu og ég var bara að lesa og slappa af þangað til við þurftum að fara á flugvöllinn. Þar var mjög ánægjulegt að fá allan VSK tilbaka, frekar fyndið samt að á svona stórum flugvelli voru bara íslendingar í tax-free röðinni. Svona erum við samt bara... Allaveganna skemmtileg ferð... Nú byrjar skólinn og ég ætla að byrja á fullu strax í dag. Btw - Myndirnar koma seinna... XXX Kristjana skrifaði 03:07 EH
| 130 ummæli
|
Stórt Fólk
Lítið fólk
Sorpa
Tíska & Hönnun
Glósur
kristjae@hi.is
msn: kristjana_osk@hotmail.com
Leit
Eldri færslur
október 2005
september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 apríl 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 október 2003 júlí 2003 desember 2002 ágúst 2002
Nýlegar færslur
|