|
|
27 október, 2004Brjálaður dagur!!!Vá þetta er búið að vera brjálaður dagur, ég lenti í árekstri, kerlingin í hinum bílnum vildi fyrst ekki viðurkenna að hún væri í órétti svo við þurftum að bíða eftir eftir að löggan kæmi og tæki skýrslu. Það eru svo ótrúlega margir sem kunna ekki á hringtorg... Arrrggh pirrandi svona lið!!! En í góðum fréttum: ég sló sölumetið mitt í vinnunni :) Annars er ég búin að vera í endalausum reddingum og veseni í allan dag og þótt þetta sé mitt blogg og ég megi segja hvað sem ég vil ætla ég ekki að kvelja ykkur með því öllu saman. Ég er þvílíkt búin að taka mig á í lærdómnum núna. Aumingjaskapur og leti hefur einkennt önnina þar til í þessari viku, annað eins hefur varla sést síðan á mínum Versló árum. Ég er búin að taka ákvörðun um að vera bara í 4 áföngum núna.... ég á samt ekki nema 4 haust áfanga eftir og alveg tilgangslaust að vera í 5 áföngum núna og bara 3 næst... En bla bla bla... það hefur ótrúleg sálræn áhrif á mann að henda einum áfanga bara frá sér og geta einbeitt sér vel að öllu. Þetta þýðir að ég þarf bara að fara í 3 próf sem er ekkert nema jákvætt. En blablabla og bæjó 25 október, 2004Ég hata raðirNýja vikan byrjar vel. Ég fór í klippingu og er mjög hárprúð. Helgin var róleg, ég gerði ekkert á föstudaginn, en á laugardaginn kíkti ég í afmæli hjá Helenu fríhafnarskvís og síðan út á lífið með Helgu og Heiðu. Við kíktum fyrst á Prikið þar sem Ásdís var með útskriftarpartý og sætasti barþjónninn var að vinna. Síðan tókst stelpunum að draga mig á Hverfis, eftir að hafa staðið í röð í fokking 45 mínútur var komið að okkur að fara inn. Um leið og við löbbuðum inn ákvað ég að fara heim. Var komin í svo vont skap á að standa í röð. Ég nenni yfirleitt aldrei að standa í röð, fer frekar á staði þar sem ég kannast við dyraverðina eða bara einhverstaðar þar sem er ekki röð. Á sunnudeginum var síðan bara haft það kósí, sofið út og síðan brunuðum við í Kef að heimsækja ömmu og afa. Amma var búin að elda snilldar lambalæri og brúnasósu. Það var rosa gott :) 23 október, 2004Kanínu skórÉg las í einhverju blaði um konu sem segir að uppáhalds inniskórnir sínir séu búnir til úr kanínuskinni! Skamm skamm. Kanínur eru vinir mínir og það má ekki labba á þeim... Það er eitt að eiga fallegan kanínu pels sem maður hefur á herðum sínum og hengir á herðatré og elskar af öllu hjarta en að traðka á kanínunni finnst mér bara ógeð !!! Hr. Níels svaf hjá héra sem á heima í næsta húsi, hann er tvöfalt stærri en hann í minnsta lagi og nú eiga þau 6 kanínu/héra börn. Mig langar ekkert smá mikið í kanínu. Systir mín átti einusinni kanínu, Depil, sem fékk lost og varð gráhærð við að naga rafmagssnúrur... Kristjana skrifaði 03:22 EH
| 128 ummæli
21 október, 2004McDonalds er ógeðÉg og Bragi horfðum á Super Size Me í gærkvöldi og djöfull er þetta geðveik mynd... Talandi um Thinspiration :/ Eníveis ég ætla aldrei að borða aftur á McDonalds, ekki það að ég hafi nokkurntíma gert það að neinu ráði. Þegar ég var lítil var ég að safna Happy Meal Disney fígúrum og suðaði alltaf endalaust í mömmu og pabba að koma á McDonalds og þar bað ég um hamborgara með engu og svo gat ég aldrei borðað þetta ógeð en ég var svaka ánægð með litlu kallana mína. Núna hef ég ekki borðað McDonalds hamborgara í svona 12 ár. ![]() Annars fór ég með Helgu á konukvöld hjá Debenhams áðan og vá hvað það er vel heppnuð markaðsaðgerð!!! Álit mitt á þeirri verslun fór frá "ekkert spes en fín nærfata og snyrtivörudeild" í að langa í hálfa búðina!!! Og þeir gáfu öllum sem komu ýkt flotta bling bling Pilgrim eyrnalokka. ;) Kristjana skrifaði 11:32 EH
| 117 ummæli
20 október, 2004Óskalisti :)Þessi síða er svo ótrúlega sjálfhverf.... Mig langar í svo marga hluti... Continue reading "Óskalisti :)"Kristjana skrifaði 04:39 EH
| 122 ummæli
Less is more ????Ég er minimalisti... ekki bara í hönnun heldur líka í lífinu (nema þegar kemur að fataskápnum, en það er allt önnur saga) Einhvernveginn finnst mér alltaf að því minni tíma sem ég hef, því betur nýtist tíminn... Ég t.d. læri aldrei neitt ef ég hef nóg tíma... byrja aldrei að læra neitt af viti fyrr en í nóvember. Þegar maður á alltaf frí á kvöldin, er t.d. bara að vinna eða í skólanum á daginn, nennir maður almennt ekki að gera neitt. Svo þegar það er rosalega mikið að gera hjá manni finnur maður allt í einu rosalega þörf fyrir að hafa alltaf fínt heima hjá sér, vera alltaf búinn að lesa fyrir fyrirlestra, gera dæmin fyrir dæmatímana og auðvitað vera alltaf til í að hitta vinina og hafa gaman ;) Það sem ég hef verið að hugsa er hvort tíminn virki öfugt við peninga... eða virkar tíminn eins og peningar? Skapar tími meiri tíma? Eða skapar tímaskortur meiri tíma??? 18 október, 2004Sunnudagar...Það er ekkert smá skrýtið þegar ég og Bragi vöknum saman snemma um helgar... Í gær gerðist það í fyrsta skiptið í lengri lengri tíma að við vöknuðum bæði fyrir hádegi. Við höfðum það ekkert smá notalegt... Fórum í IKEA og að versla í matinn og keyptum meiraðsegja nokkrar jólagjafir. Síðan fórum við í þrettán ára afmæli hjá Eið Má frænda mínum klukkan þrjú... (Úff hann og systir mín eru orðin svo stór!) Þar var ekkert smá kósý... Hittum familíuna og borðuðum geðveikar kökur og svoleiðis... Í gærkvöldi vorum við síðan með matarboð. Maggi & Jónína og Anna Rakel & Vignir komu... (Maggi og Anna Rakel eru vinnufélagar Braga) Bragi eldaði ýkt góðan fisk og við drukkum hvítvín og fórum í svona "actionary" þar sem við skrifum sjálf miðana... það er svo miklu fyndnara og skemmtilegra heldur en alvöru actionary. Þar komu upp nokkur mjög fyndin orð... t.d. Pamdúkka... frekar fyndið að leika það.... Ojj hvað er kominn mikill vetur!!! Ekkert smá kalt... Rok og snjór :þ ...en annars þarf ég að fara að leggjast í bækurnar... ég er búin að vera allt of löt síðastliðna viku, eða síðan ég byrjaði að vinna fyrir Spron á kvöldin. Held ég læri fjármál í dag.... XXX Kristjana skrifaði 12:15 EH
| 129 ummæli
16 október, 2004ThinspirationÞað er svo margt ruglað til á netinu... Um daginn rakst ég á umræðu um Thinspiration.... Í framhaldi af því fór ég að skoða Live Journal samfélag þar sem stelpur hvetja hvora aðra í anorexíu sinni... Ekkert smá sjúkt lið.... Hugmyndafræðin á bak við þetta er sú að anórexía sé lífsstíll en ekki sjúkdómur. Fólkið lítur ekki á sig sem fórnarlömb eða sjúklinga... það telur sig einfaldlega búa yfir meiri viljastyrk en aðrir... Rannsóknir (allavegana þessi ein.... nenni ekki að tékka á öðrum) hafa samt sýnt að thinspiration getur hjálpað sumu fólki sem vill grennast. Thinspiration:
Reverse thinspiration: ![]() Reverse thinspiration 1 Reverse thinspiration 2 14 október, 2004Japanese street styleMig langar að fara til Japan... Mæli með þessari síðu ef einhver hefur áhuga á þessu: www.style-arena.jp einnig er www.japanesestreets.com fín ef fólk hefur þolinmæði... ![]() KaffiÍ dag fór ég á Te og Kaffi í Smáralind og fékk mér kaffi, ég tók nebbla þá ákvörðun fyrir nokkrum dögum að ég myndi byrja að drekka kaffi... Ég ætla samt ekki að fara að drekka ógeðslegt súrt kaffi, ég ætla nebbla að vera kaffisnobbari. Allavegana þangað til ég verð háð því og fer að drekka kalt bónuskaffi úr hitabrúsa. Eníveis ég varð ekkert smá hyper og stressuð og skrítin, ég held ég fíli það !!! ![]() 13 október, 2004Nýtt útlitSmá meikóver á síðunni...
Vona að ykkur finnist þægilegra að lesa þetta svona ;) Það er búið að vera nóg að gera undanfarið... ég tók nebbla að mér smá aukavinnu hjá SPRON. Ég er að vinna í sölu á e-kortum. Þetta er bara tímabundin aukavinna í 1-2 mánuði. Vitiði þetta er bara miklu skárra en ég bjóst við og gefur bara mjög vel í aðra hönd. Ég er búin að fá próftöflu... þarf bara að fara í 4 próf :) Málið er samt ég á að fara í próf þrjá daga í röð !!! Við erum nú samt að reyna að vinna í því að fá þessu breytt. Æ ég vona það svo mikið ... Kristjana skrifaði 02:10 FH
| 131 ummæli
Langar í ;)![]() Aldrei að vita nema ég kaupi mér bara svona þegar ég fæ útborgað... Gleði gleði... 6 október, 2004Brummavesen....oooo það var keyrt aftan á brummann okkar á meðan við vorum í útlöndum :( Risastór Jeppi sem gerði gat (!!!) í skottið okkar... og eyðilagði stuðarann líka.... það verður lagað en samt..... oooooo :( Kristjana skrifaði 12:04 FH
| 203 ummæli
5 október, 20043. október hátíðinÞað er svona helst að segja frá laugardagskvöldinu í Leiden.... þar voru svona 300.000 manns fullir í miðbænum vegna hátíðar sem er haldin árlega til að halda uppá einhver stríðslok fyrir langa langa löngu. Einhver strákur gaf mér þessi flottu flottu glow-in-the-dark gleraugu og eftir það vildu allir vera vinir mínir... Rétt hjá húsinu hjá mömmu og pabba er æðislega kósí hommastaður sem við stoppum oft á í einn bjór á heimleið, af gömlum vana kíktum við þar inn og þar kynntumst við einum sem skreytti mig fjólubláum fjöðrum og við dönsuðum og dönsuðum. Ekkert smá gaman... Annars fórum við líka á geðveikt góðan ítalskan stað á föstudagskvöldið. Ég hef aldrei borðað eins gott tortellini á ævi minni, og carpaccio-ið og gelato-ið... nammi namm... Ég held að allir hafi verið mjög sáttir... Mamma og Lilja kysstu meiraðsegja kokkinn... (ekki djók) ;) Allavegana við erum mjög sátt við ferðina. Nú er allt búið og nú er bara bara málið að fara að læra á fullu og koma sér í skólagírinn aftur... xxx P.S. Við Bragi erum búin að sameina myndasöfnin okkar og núna er allt í myndasafninu hér til hægri ef einhver vill skoða... |
Stórt Fólk
Lítið fólk
Sorpa
Tíska & Hönnun
Glósur
kristjae@hi.is
msn: kristjana_osk@hotmail.com
Leit
Eldri færslur
október 2005
september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 apríl 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 október 2003 júlí 2003 desember 2002 ágúst 2002
Nýlegar færslur
|