27 nóvember, 2004

ART DECO

Ég er með Art Deco æði... ég held að það séu tvær ástæður fyrir þessu... (1) Myndin Top Hat með Fred Astaire og Ginger Rogers, og sérstaklega lagið Cheek to Cheek (2) Húsið okkar er byggt 1929 og mér finnst gaman að pæla í því hvernig allt hefur verið hugsað og hvernig allt "eigi" að vera. Mér finnst nebbla að almennt eigi að reyna að halda í upprunalegan arkitektúr húsa, nema hann sé ógeð ljótur.

Þetta var stund á milli stríða (í bókstaflegri merkingu) Jazz var vinsælasta tónlistin, bílar og símar urðu almannaeign, konur gátu í fyrsta sinn gengið í þægilegum fötum, "flapper" lookið var heitt, fólk var farið að geta ferðast auðveldar á milli staða og framtíðin var ofboðslega björt, með háum byggingum og kokteilum og Hollywood glits og glamúr.

Auburn 851 Speedster frá 1935....

Empire State Byggingin er byggð 1931 og Chrysler byggingin 1930

Týbísk Art Deco mynd

Fred Astaire og Ginger Rogers 1937 (held ég)

Mig langar svo rosalega mikið til að sjá myndina Metropolis, hún er frá 1927. Ég las að einhver DVD útgáfa frá 2001 sé sú besta sem til er núna.

Algeng eldavél frá 1929 (allavegana í USA, veit ekki með Ísland)

Kristjana skrifaði 10:44 FH | 5 ummæli

24 nóvember, 2004

Strandstrákar í snjónum

Hafið þið, yndislegu lesendur góðir einhverja hugmynd um hvað var gaman á Beach Boys tónleikunum??? Ég og Bragi bestaskinn skelltum okkur á þá... ég er svo lítið inni í svona gamalli tónlist og var ekki alveg að fatta þeir ættu svona rosalega marga slagara, ég vissi nú samt um surfin' usa og eitthvað. Eníveis... það var ekkert smá gaman :) Náttúrulega mikið að miklu eldra liði og við þekktum eiginlega enga... en við hittum nú samt Sigga Palla og Dóru. Hún er svo mikil dúlla hún keypti Grúppíu bol handa mér sem er nú þegar orðinn uppáhalds t-shirtinn minn. Ég leyfði samt Braga að vera í honum í dag, hann má eiga hann með mér.

Ég fór að hitta Fríðu sætu stóru frænku áðan... Hún er alltaf jafn mikið yndi, ný flutt heim frá Spáni og svoleiðis og allt að gerast hjá henni...

Ó mæ god.... ég fékk mér nokkur Beach Boys lög í dag og ég er núna að hlusta á Kokomo lagið og ég er að deyja mig langar svo til Aruba, Jamaica, (ú I wanna take you to ) Bermuda, Bahama (come on pretty mama) Kilago, Montego (ú I wanna take you to the) Kokomo...... Aaaaa sól og sandur og marglitir fiskar og bleikir kokteilar... Ég er næstum því búin að sannfæra Bragann minn.... Hann er svo bestur :) Kannski förum við þangað í brúðkaupsferð næsta sumar :)

Þessi mynd er bara fyrir Sigrúnu... Við söknum ykkar :(

Kristjana skrifaði 12:23 FH | 43 ummæli

19 nóvember, 2004

Fjólublátt og bleikt blaður

Prófin nálgast ALLTOF ALLTOF hratt. Í vikunni er ég búin að vera að vinna hópverkefni í markaðsfræði III. Þetta byrjaði allt voða sakleysislega. Við ætluðum að gera venjulegt verkefni um strætó en einhvern veginn breyttist þetta í leikrit... ég skil eiginlega ekki hvað gerðist. Í fyrstu átti ég að leika strætóbílstjóra með stúdentshúfu en svo var ég skyndilega komin í hlutverk prinsessu með pappakórónu á hausnum og í fjólubláa og bleika pallíettukjólnum mínum.... (Ég kalla hann Carrie Bradshaw kjólinn, ég keypti hann á Waterloo plein í Amsterdam. Hann er ýkt flottur, samt alltof víður og skrýtinn. Ég hef aldrei notað hann.... þetta verður fínn óléttukjóll einhvern daginn.... eitthvert árið !!!)

Í dag fór ég í tíma í fjármálum og fór svo að gera gömul próf í markaðsfræði IV og sé að ég kann bara ekkert í þessu.... Spurning að fara í það að lesa bókina??? Annars er ég komin með nokkuð þétt plan næstu daga... (Kannski ekki sérlega skemmtilegt lesefni... ég mæli með því að þið hættið að lesa núna nema ykkur leiðist ÓBÆRILEGA !!!)

Föstudagur: Læra fjármál um daginn, fara svo að vinna
Laugardagur: Vinna og tími í fjármálum, klára "tímaverkefni" í Markaðfr. 3.
Sunnudagur: Glósa Markaðsfræði IV
Mánudagur: Undirbúa kynningu fyrir Viðskiptaensku
Þriðjudagur: Flytja kynningu og gera skriflega hlutann....
Miðvikudagur: Glósa Markaðsfræði IV og lesa glósur úr markaðsfræði III
Fimmtudagur, 25. nóv. - 9. des.: Læra fjármál og fara í prófið 9. des
4. des: Jólahlaðborð í vinnunni.
10. des: Djamm með E-korts stelpunum
11. des - 15. des: Læra Markaðsfræði III & IV og taka próf í því.

Kristjana skrifaði 01:16 FH | 6 ummæli

14 nóvember, 2004

Blast from the Past

Ég verð bara að benda ykkur á nýjustu færsluna hennar Hönnu Krisínar glamúr pæju. Ekkert smá gaman af þessu.

Blast from the Past

Kristjana skrifaði 07:32 EH | 5 ummæli

Brjálað tjútt :)

Vá hvað var gaman í gærkvöldi. Ég, Heiða og Helga fórum í stelpupartý til Þóreyjar. Þar var brjáluð stuð... eftir það kíktum með þeim á Rex þar sem við lækkuðum meðalaldurinn um nokkur ár. Við skemmtum okkur brjálæðislega vel. Dönsuðum og dönsuðum, meira að segja Helga sem dansar eiginlega bara ekki. Við fórum síðan á Vegamót. Ég hitti Braga þar og við röltum saman heim. Við komum við á mamas tacos og kynntumst þar einhverju liði, það er alltaf eitthvað svo gaman þar :)

Annars er ég bara hálf þunn. Ég er búin að vera að vinna með krökkunum sem eru með mér í markaðsfræði 3 hópnum mínum. Og svo er Nip/Tuck í kvöld jibbí jei !!!! Það er svo skemmtilegur þáttur.

Kristjana skrifaði 07:24 EH | 0 ummæli

11 nóvember, 2004

Bara smáatriði

Can an atheist believe god is in the details?

Ég var komin með smá slatta af myndum af flottum hlutum frá vorsýningunum inní tölvuna hjá mér og ákvað að sýna ykkur. Það er svo margt flott og maður má alveg skoða þótt maður hafi engan veginn efni á að kaupa sér svona fínt :)


Taska Zac Posen og skór Narciso Rodriguez


Hanskar frá Chanel og Moschino veski


Armbönd og veski chanel og Bottega Veneta veski


Moschino armband og Bottega Veneta veski

Kristjana skrifaði 02:53 FH | 42 ummæli

8 nóvember, 2004

Brúðkaup

Ég fór í brúðkaup um helgina. Það var mjög gaman, amma var nebbla að gifta sig. Brúðkaupið var í fríkirkjunni og svo var veislan í safnaðarheimilinu þar. Eftir veisluna fór ég á djammið nokkrum úr familíunni þar á meðal Anniku sem er norskur prestur. Hún og pabbi eru systkinabörn. Hún var algjör djammari, alls ekki stereotypical prestur. Við fórum á Kaffibrennsluna, Rex og svo enduðum við á Prikinu rétt fyrir lokun. Síðan fór sunnudagurinn aðallega í afslöppun og svoleiðis. Ég og mamma fórum að skoða sal fyrir brúðkaupsveisluna. Okkur leist ekkert smá vel á Rafveituheimilið og það lítur út fyrir að veislan okkar verði þar :)

Ég þarf að vera með fyrirlestur í skólanum á morgun og ég held ég verði að byrja að undirbúa mig :/

Kristjana skrifaði 10:19 EH | 0 ummæli

3 nóvember, 2004

Mjúkur mysuostur og önnur kúl málefni

Vitiði ég er svo busy ég er að deyja, ég vildi að ég vissi hvað er í gangi en ég hef enganvegin yfirsýn yfir þetta allt saman. Ég held að hausinn á mér springi bráðum. Ég held að ég deyji bara ef ég fæ ekki góðar einkunnir í skólanum, ef ég sel ekki ógeðslega mörg kort í vinnunni, ef íbúðin mín er ekki hrein og fín, ef ég er ekki í flottum fötum og ef ég hef ekki tíma til að greiða mér og þarf að vera með hárið í tagli. En hárgreiðslumaðurinn minn segir nebbla að ég megi það ekki því þá slitni hárið mitt svo mikið. Ég er víst með extra viðkvæmt hár. Dísus alltaf eru að bætast við kröfur. Maður má ekki einusinni vera með tagl lengur. Það er eins gott að ég eigi ekki krakka. Þá fyrst fengi ég taugaáfall. Þurfa að blása hárið á krakkanum, ekki má hún vera með tagl og ekki gott að vera með blautt hárið og fá heilahimnubólgu.

Ég er að gera verkefni um mjúkan mysuost í skólanum. Hann er vondur og ljótur, samt verður verkefnið okkar fínt. Mig langar ekki í mysuost, mig langar til Jamaica, ég ætla að fara þangað. Sjáiði bara til. Vill einhver skipta á Jamaica ferð og dollu af mysing?

Kristjana skrifaði 10:33 EH | 12 ummæli