27 desember, 2004

Jólin

Hæ allir saman, vona að þið hafið haft það gott um helgina. Ég hafði það rosa gott. Bragi eldaði brjálað góðan kalkún á aðfangadagskvöld. Tengdó og systur hans Braga voru hjá okkur. Afi hans var líka og vinur okkar frá UK. Það var rosa gaman að halda jólin heima hjá mér. Eins og líklegast flestir lesendur vita eru tengdó í ársleyfi í Danmörku og voru hér í jólafríi. Ég vildi bara að mamma, pabbi, Anna og Kristján hefðu verið líka. Saknaði þeirra soldið mikið :(

Ég fékk rosa rosa marga pakka. Frá Braga bestaskinni fékk ég fallegasta hálsmen í heimi og hring í stíl. Frá mömmu og pabba fengum nýjar sængur. Frá litlu sys og bróðir mínum fengum við sængurföt. Við fengum IQ ljós frá tengdó og webcam og síma headset (eða hvað þetta heitir) frá Sólveigu og Sigrúnu. Síðan fengum við fullt af dóti í íbúðina, fullt af konfekti, peninga, eyrnalokka, trefil og allskonar fínt og flott. Frá Ólöfu frænku og familý fékk ég náttföt frá Victoria's Secret og fór því snemma undir sæng á aðfangadagskvöld að kúra undir nýju sænginni og sængurfötunum.

Restin af jólunum hafa farið í jólaboð og heimsóknir. Í gærkvöldi fórum við svo í Gettu Betur til Alla og Jórunnar. Fengum okkur rautt og bjór og röltum svo heim. Við vorum í sleipum skóm og gátum "skautað" á tjörninni. Það var sko gaman gaman.

XXX
K

Kristjana skrifaði 01:14 FH | 1 ummæli

14 desember, 2004

Próatíð lokið

Síðasta prófið á morgun... Svo jólafrí :)

Kristjana skrifaði 11:55 FH | 50 ummæli

13 desember, 2004

Ekkert ónýtt, allt í góðu lagi...

Ég er búin að vera í nettu sjokki síðustu daga. Á fimmtudaginn hellti ég nebbla smá kóki á tölvuna mína og hún dó bara. Mér leið alveg ömurlega, alveg sorglegt hvað maður verður háður tölvunni sinni. En sem betur betur fer var hægt að laga skutluna.

Úff hvað mig hlakkar til að vera búin í þessum leiðinda prófum... Tim teikari kemur í kvöld og ef við verðum svo heppin að fá snjó er aldrei að vita nema við förum út að teika á miðvikudaginn eftir síðasta prófið :)

Ég er svöng... mig langar í carpaccio

Kristjana skrifaði 09:32 EH | 5 ummæli

6 desember, 2004

3 days and 3 nights

Ég veit eiginlega ekki hvað er að... Einn daginn er ég að missa vitið úr stressi yfir því að hafa alltof mikið að gera. Svo nenni ég þessu bara ekki lengur og fer bara að gera eitthvað allt annað sem mér finnst skemmtilegt að gera. Síðustu þrír dagar eru bara búnir að vera skemmtilegir. Þetta byrjaði á fimmtudaginn þá fóru ég og Bragi að borða á Ítalíu. Ég fékk mér carpaccio sem er uppáhaldið mitt. Síðan fékk ég mér tortellini með ricotta og spínat. (Já Helga ég hugsaði alveg til þín þegar ég borðaði það) Á Föstudaginn fórum við stelpurnar á stelpudjamm. Við tókum reyndar írskan vin hennar Kristínar Báru með okkur. Við byrjuðum á Rex fórum síðan á Prikið og svo á Kaffibarinn.


SMELLIÐ Á MYNDINA TIL AÐ SKOÐA FLEIRI

Á laugardaginn fór ég á jólahlaðborð hjá . Við fríhafnarskvísurnar hittumst heima hjá mér... nema Helena, hún greyið varð að vera að vinna... við drukkum rautt og hvítt frá Slóveníu. Síðan hittumst við allar á hlaðborðinu, þar var bara mjög gaman, við drukkum og tjúttuðum. Ég og Anna fórum nú frekar fljótlega á Prikið til Braga sæta. Okkur hlakkar mikið til að fara á árshátíðina á Akureyri í febrúar...


SMELLIÐ Á MYNDINA TIL AÐ SKOÐA FLEIRI

Nú verð ég að vera súper dugleg að læra alla vikuna. Ég er nebbla að fara aftur á jólahlaðborð næsta föstudag með stelpunum í sölunni í spron. Það var ekkert smá fyndið... um daginn hringdi ein í einhvern eldri mann og bauð honum kort.. Hann varð alveg brjálaður!! "Ha ertu að bjóða mér e-pillu??!!??? Hvurslags er þetta eiginlega???" Gaman að þessu.

Kristjana skrifaði 02:21 FH | 0 ummæli