28 janúar, 2005

Megapæja

Mín er búin að vera lasin alla vikuna og núna er mér pínku pons farið að batna... ég vildi að ég gæti komist út með Helgu mega pæju. Hún kom til mín að mála sig og svoleiðis. Hér sést hvað hún var fín og sæt...

Soldið rauð augu en ég held að hún þekki mann sem kann að díla við svoleiðis vesen.

helgafina.jpg

Eins gott að hún skemmti sér fyrir hönd mína líka ;)

Kristjana skrifaði 11:12 EH | 1 ummæli

Ósvífni Árni

Djöfull er ég komin með mikið ógeð á Árna Johnsen. Ég þoli ekki manninn, og hvað þá allt heilaþvegna pakkið sem elskar hann. Ekki nóg með að hann hafi reynt að stela fullt af peningum af þjóðinni í þjóðleikhúsmálinu... heldur hafði skúrkurinn ekki neina skömm í sér og gat ekki verið til friðs í skammarkróknum. Hann þurfti endalaust að vera að tjá sig, (það var kannski alltílagi því hann var að vinna í því að bæta aðstöðu fanga en EKKI að reyna að koma sjálfum sér á framfæri og bæta mannorð sitt). Helvítis fíflið dirfðist til að biðja um frí frá fangelsinu til að spila á gítar í eyjum og fólkið fagnaði honum... HVAÐ ER EIGINLEGA AÐ??!!?? Nú þykist maðurinn vera svaka listamaður og allir sjálfstæðis-bæjarstjórarnir á landinu kunna ekki við annað en að kaupa "listaverkin" hans til að styðja gamlan vin.

Enn og aftur blöskrar mér ósvífni þessa manns. Að koma með einhverja falska rugl "skýrslu" frá einhverri verkfræðiskrifstofu til að troða þessari vestmannaeyjaganga umræðu fram. Árni þú ert ekki lengur þingmaður!!! You blew it!!! Farðu að einbeita þér að þínu djobbi á vestfjörðum og hættu að koma í sjónvarpið. Ég æli ef ég sé hann einusinni enn.

Kristjana skrifaði 06:27 EH | 3 ummæli

23 janúar, 2005

Sushi

Nammi nammi :) Siggi Palli kom til okkar í gær og strákarnir gerðu sushi...

Kokkarnir og maturinn þeirra :)

djamm 22jan 001.jpg djamm 22jan 007.jpg

djamm 22jan 009.jpg djamm 22jan 011.jpg

djamm 22jan 019.jpg djamm 22jan 020.jpg

djamm 22jan 045.jpg djamm 22jan 047.jpg

djamm 22jan 043.jpg djamm 22jan 044.jpg

djamm 22jan 046.jpg

Síðan fórum við á Prikið og myndirnar þaðan ekki konum (eða mönnum) bjóðandi :)

Kristjana skrifaði 02:05 EH | 2 ummæli

21 janúar, 2005

Fílakúkur

elephant-poop.jpg

Kristjana skrifaði 12:42 FH | 2 ummæli

17 janúar, 2005

Jibbí jei :)

Nr. 1 Pabbi besti á afmæli í dag. :)
Nr. 2 Alli og Jórunn búin að eignast litla stelpu :) og Bjarki litli því orðinn stóribróðir :)

Vitiði hvað ég fór á geðveikt skemmtilega mynd í gær.. Hún heitir Un long dimanche de fiançailles eða A Very Long Engagement... nei nei nei, þetta er ekki rómantísk gamanmynd. Þetta er mynd eftir sama gaur og gerði Amelie. Ef einhver lesandi hefur ekki séð aðra hvora ætti hann að snara sér í bíó eða útá videoleigu.

Annars voru auðvitað Golden Globes í gær.. alltaf gaman að sjá alla fínu kjólana. Charlize er alltaf svo sæt, nema í Monster:)

Kemur á óvart hvað hún er flott...

Eins og brúðarkjóll... en samt flott...

Flottur litur :)

Bara skella bót í gatið og þá væri hún enn meira gorgeous

Úú Bridget Jones líka orðin dökkhærð.. Þetta virðist vera eitthvað í tísku.

Svo eru auðvitað alltaf einhverjir ýkt asnalegir... hehehe :D Diane Kruger

Sönnun þess að peningar kaupa ekki smekk :)

Kristjana skrifaði 09:51 EH | 2 ummæli

16 janúar, 2005

Afmæli

Í gær átti Birgitta sæta afmæli...

birgittajj--.jpg

Einnig áttum við Bragi 5 ára afmæli. Úff það er svo rosalega langur tími :)

kyssast.jpg

Myndunum stolið af heimasíðunum hjá Jóhönnu og Stebba :)

Kristjana skrifaði 04:59 EH | 12 ummæli

Aldur

Rakst á þetta á síðunni hjá Þóru Marteins... freakishly nákvæmt... Prófið þið líka...

You Are 24 Years Old
24


Under 12: You are a kid at heart. You still have an optimistic life view - and you look at the world with awe.

13-19: You are a teenager at heart. You question authority and are still trying to find your place in this world.

20-29: You are a twentysomething at heart. You feel excited about what's to come... love, work, and new experiences.

30-39: You are a thirtysomething at heart. You've had a taste of success and true love, but you want more!

40+: You are a mature adult. You've been through most of the ups and downs of life already. Now you get to sit back and relax.

Kristjana skrifaði 04:42 EH | 3 ummæli

15 janúar, 2005

Gulryk

Undanfarið höfum við Bragi verið að dunda okkur við að skafa málningu af glugganum á baðinu, pússa og sparsla.

Glugginn.jpg

Í gær náðum við loksins að klára allt messið... þ.e við náðum að fara fyrstu umferð af grunni. Við ákváðum að nota tækifærið og pússa þröskuldana okkar líka.. Eníveis íbúðin á hvolfi... Gult ryk allsstaðar. Svo var klukkan orðin 5 og ég varð að drífa mig í vinnuna, skvetti vatni framan í mig og í gallann og út í bíl, setti maskara og kinnalit á rauðu ljósi og mætti alsæl í vinnuna.

En nei nei, viti menn, leit ég ekki í spegilinn eftir að hafa verið að vinna í svona 1 og hálfan tíma og mín bara með þykkt lag af gulu ryki í hársverðinum. Frekar ógeðslegt. Þá hafði enginn þorað að segja neitt, haldið að ég væri kominn með einhvern ógeðslegan svepp í hársvörðinn eða bara svona svakalega mikla flösu. Frekar gross. Sem betur fer var vélin farin og ég gat drifið mig heim í sturtu. Bragi sætasti var búinn að þrífa mesta gulrykið í burtu svo ég gat bara slappað af.

Kristjana skrifaði 04:52 EH | 1 ummæli

10 janúar, 2005

Staðan á nýju ári.

Skólinn byrjaður aftur og fyrsti tíminn fór í að læra 15 nöfn og fara í stólaleik. Þetta var ekkert smá skemmtilegt... alveg eins og í grunnskóla eða bara leikskóla. En ótrúlegt en satt þá fær maður einingar fyrir þetta...

Við erum búin að hafa það rosa gott á nýja árinu. Báðar fjölskyldurnar voru hér (þ.e. mín og tengdó líka) Þau fóru reyndar öll fyrir nokkrum dögum síðan, nema Sólveig hún er hér í nokkra daga í viðbót. Það er alltaf svo gott að hafa alla á landinu. Ása vinkona og Fríða eru fluttar heim frá Spáni og Kristín var hérna um hátíðirnar. Af hverju flytja alltaf allir til útlanda? :(

Á laugardaginn komu Ása og Konstantin til okkar í nauta- og lambalundir. Síðan spiluðum við æðislegt spil sem heitir Sequence. Mæli með því fyrir þá sem hafa ekki prófað.

Við fáum líklegast skanna lánaðan bráðum og þá set ég inn nokkrar skemmtilegar gamlar myndir :)

Kristjana skrifaði 10:03 EH | 1 ummæli

8 janúar, 2005

Ekki Frétt !!!

Mariah Carey kaupir sér föt fyrir 700 þúsund krónur. Nú detta af mér allar dauðar lýs !!! Hver þremillinn !!!

Annars nenni ég ekkert að skrifa núna :/

Kristjana skrifaði 04:10 FH | 0 ummæli