10 júlí, 2005

Sumarfrí

Ég er í sumarfríi :) Ég nenni ekki einusinni að setja inn myndir á þetta annars frábæra blogg. Ég er búin að fara í ferðalag vestur síðan ég skrifaði síðast, búin að klára prófin og búin að vera að vinna í bankanum. Ég er búin að borða fullt af skyndibitamat, drekka fullt af rauðvíni og hafa það ágætt. Þessa dagana er ég aðallega að hugsa um brúðkaupið sem verður eftir 3 vikur, sumarprófin sem verða svo í ágúst og brúðkaupsferðina sem við ætlum að fara í september. Þetta verður allt voða gaman og ég hlakka bara til.

Kristjana skrifaði 07:42 EH | 1 ummæli