|
|
24 nóvember, 2005BarbieHVAÐ MYNDI BARBIE GERA EF HÚN VÆRI ÉG???
Vakna klukkan 8 BARA SVONA PÆLING SKO..... 16 nóvember, 2005FuglaflensaÉg er búin að vera að velta því svolítið fyrir mér hvernig stjórnvöld hér á landi ætli að taka á þessari flensu þegar hún kemur hingað. Og ef hún kemur ekki þá munu einhverjir þannig hlutir gerast einhverntíma í framtíðinni, það er alveg á hreinu. Ætli það séu til einhverjar reglur um hvað eigi að gera í svona neyðarástandi. Það er nokkuð ljóst að ekki verður til nóg af þessu lyfi fyrir alla, er búið að ákveða hvernig á þá að dreifa þeim. Hvernig á að forgangsraða og hvernig skuli staðið að dreifingu. Einnig finnst mér fáranlegt að það sé ekki búið að ákveða hvaða opinberu stofnunum skuli lokað og hvað verður opið á meðan þetta stendur sem hæst. Á fólk að senda börnin sín í skólann? Á að skrópa í vinnuna? Maður hefur heyrt talað um að margir munu deyja, einhverstaðar heyrði ég töluna 50.000 í Bretlandi (Á meðan 13.000 deyja þar á ári úr venjulegum flensum). Augljóslega hefur svona mikil áhrif á hagkerfi þjóða (hvað þá líðan þegnanna) en það sem hefur enn meiri neikvæð áhrif á hagkerfið er þegar glundroði ríkir og enginn veit hver er með stjórn á ástandinu. Mér finnst að stjórnvöld ættu að setja saman einhverskonar áætlun og kynna hana vel fyrir fólki. Það er ekkert mikilvægara í neyðarástandi en að fólk finni að það er einhver við stjórnvölinn. Ef svo er ekki reyna allir að stjórna og þá myndast enn meira kaos. Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa undanfarin ár verið mjög dugleg að sýna stjórn og vald á neyðartímum (þótt ég sé ekki endilega sammála því sem stjórnvöld þar gera) og getum við lært mikið á þeim í þessum efnum. Er ekki sniðugra að búa til einhverja áætlun núna, áður en neyðarástand skapast? Er ekki nógu slæmt að fullt af fólki deyji, gerum það sem við getum til að gera svona tímabil eins bærileg og hægt er. Einnig þurfum við að reyna að minnka eftirköstin á hagkerfið.
Fannst þetta bara flott mynd sko :) 14 nóvember, 2005MatarklúbburinnVið erum í matarklúbb og síðastliðinn Laugardag buðum við heim til okkar. Bragi snilldarkokkur eldaði kalkún sem var rosalega góður, Ása mætti með prjónana, Konstantin með rauðvínið. Fríða og Martín mættu með Mathías ofurkrútt og snilldar Argentínskar pönnukökur í eftirrétt með bönunum og einhverskonar karamellu í krukku. Mjög gott. 4 nóvember, 2005Holland og KanaríeyjarÉg og hann Bragi minn erum að fara í tvö ferðalög á næstunni. Þann 22. desember erum við að fara til Hollands ásamt Kristjáni bróður mínum að heimsækja mömmu, pabba og Önnu systir. En þessi dagur er einmitt afmælisdagurinn hennar þannig að það verður gaman að geta mætt í afmælisveislu og svo er auðvitað æði að eyða jólunum með fjölskyldunni. Við komum aftur á klakann þann 29. des til að fá alvöru áramót á Íslandi. Síðan þann 4. janúar munum við fara til Kanaríeyja að jafna okkur í á þynnkunni í viku. Ég má til með að sýna ykkur mynd af sundlauginni á hótelinu... hún er svo girnileg! ![]() 2 nóvember, 2005Tilgangaslausar staðreyndirHún Ásdís klukkaði mig og hér koma nokkrar tilgangslausar staðreyndir um mig. *Uppáhaldslögin mín þegar ég var lítil voru Rabbabara Rúna og Fatlafól* *Ég fæ ennþá bakþanka annað slagið yfir því að hafa hætt í hönnunarnáminu* *Þegar ég var lítil langaði mig að verða skólastjóri Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Þetta var mesta valdastaða sem ég vissi um. Kristján afi var yfirkennari eins og það hét (aðstoðarskólastjóri) í barnaskólanum í Keflavík og ég vissi ekkert merkilegra en að vera skólastjóri yfir risa-stóru krökkunum í fjölbraut* *Mér finnst ís ekkert sérstaklega góður* *Ég er mjög bílveik, sjóveik og stundum flugveik líka. Þrátt fyrir þetta langar mig ekkert meira en að læra að fljúga og kaupa flugvél og fljúga út um allan heim, eins og John Travolta. Ég myndi fljúga til Afríku* Ég ætla að klukka Braga sæta sem er svo svekktur yfir því að hafa ekki verið klukkaður nú þegar eins og kemur fram í þessari færslu hér. Einnig vil ég klukka Hönnu Kristínu og Sissu. |
Stórt Fólk
Lítið fólk
Sorpa
Tíska & Hönnun
kristjae@hi.is
msn: kristjana_osk@hotmail.com
www.myspace.com/kristjana_osk
Leit
Eldri færslur
nóvember 2006
september 2006 júlí 2006 júní 2006 mars 2006 janúar 2006 desember 2005 nóvember 2005 október 2005 september 2005 ágúst 2005 júlí 2005 apríl 2005 febrúar 2005 janúar 2005 desember 2004 nóvember 2004 október 2004 september 2004 ágúst 2004 júlí 2004 júní 2004 maí 2004 apríl 2004 mars 2004 febrúar 2004 desember 2003 nóvember 2003 október 2003 júlí 2003 desember 2002 ágúst 2002
Nýlegar færslur
|