11 desember, 2005

Kommentaleikurinn

Ég er búin að svara svona leik bæði á síðunni hennar Hönnu og hjá Braga sæta þannig að það er tvöfalt komið að mér. Þetta er voða sniðugt (Í alvörunni sko... ekkert bull)

Settu nafnið þitt í kommentakerfið og..

1. Ég segi þér eitthvað handahófskennt um þig.
2. Ég segi þér hvaða lag/mynd minnir mig á þig.
3. Ég segi þér hvaða bragð minnir mig á þig.
4. Ég segi þér fyrstu ljósu minninguna mína af þér.
5. Ég segi þér á hvaða dýr þú minnir mig á.
6. Ég spyr þig að einhverju sem ég hef velt lengi fyrir mér um þig.
7. Ef þú lest þetta verðuru að setja þetta á bloggið þitt!

Kristjana skrifaði 08:09 EH | 18 ummæli

7 desember, 2005

Ógó sniðugt

Hér er hægt að skoða hversu vel maður passar við þann sem maður elskar... eða bara þráir. Þetta er mjög sniðugt. Ég og Bragi fengum 90% sem er bara nokkuð gott :) Og svo er hægt að prófa nokkra ef maður er með nokkra/nokkrar í takinu :)

Smellið hér: http://www.crushcalculator.com/content/love/267394573

Próf....

Nú er ég í miðri prófatörn...langaði bara að láta ykkur vita. Hanna Kristín er hjá mér og við erum búnar að vera duglegar að læra í dag þrátt fyrir mikið slúður :D Ég fór í tölfr. próf á mánud, reikningshald á morgun, utanríkisverslun á þriðjud og svo stærðfræði á föstudaginn eftir viku og þá verður sko mikið djamm :)

Við erum hætt við að fara til Kanaríeyja í janúar. Bara að láta ykkur vita þannig að þið séuð ekki að öfunda mig út af sundlauginni...

Best að halda áfram að læra. Próf í fyrramálið. Wish me luck ;)

Kristjana skrifaði 10:58 EH | 0 ummæli